Áætlað er að það myndi kosta ríkissjóð 82,5 milljarða króna að koma bundnu slitlagi á alla tengivegi í Norðvesturkjördæmi og 51,7 milljarð að gera slíkt hið sama við héraðsvegina. Myndin er af vegi á Mýrum. Ljósm. mm

Tæpur helmingur tengi- og héraðsvega er í NV kjördæmi

Í svari Sigurðar Inga Jóhannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Hafsteinsdóttur (D) alþingismanns í Suðurkjördæmi, kemur fram að meðalkostnaður við að koma bundnu slitlagi á tengi- og héraðsvegi í landinu er um 70 milljónir króna á hvern kílómetra. Því gæti það kostað um 150 milljarða króna að koma á bundnu slitlagi á þá 2.118 km sem nú eru með malarslitlagi í landinu. Í svari ráðherrans kemur einnig fram að sökum þess að héraðsvegir eru mjórri vegir en tengivegir er áætlaður kostnaður við að koma á bundnu slitlagi á þá um 70% af kostnaði við tengivegina. Því má gera ráð fyrir að það kosti 50 milljónir króna á hvern km að koma á bundnu slitlagi á héraðsveg. Það gæti því kostað um 115 milljarða kr. að koma á bundnu slitlagi á alla héraðsvegi sem nú eru með malarslitlagi. Það stendur hins vegar ekki til, samkvæmt svari ráðherrans.

Tæpur helmingur tengi- og héraðsvega er í NV kjördæmi - Skessuhorn