
Bændur eru uggandi yfir tíðindum að riðusmitum í aðliggjandi varnarhólfum. Ljósm. úr safni/mm
Sauðfjárbændur hvetja til stóraukins viðhalds girðinga
Sauðfjárbændur í Borgarfjarðarhéraði eru að vonum uggandi yfir tíðindum af riðusmiti í Miðfjarðarhólfi. Á fundi sínum í gær var eftirfarandi ályktun samþykkt:
„Félag sauðfjárbænda i Borgarfjarðarhéraði sendir nágrönnum sínum í Miðfjarðarhólfi hlýjar kveðjur með von um að ekki greinist fleira fé með þennan hræðilega sjúkdóm sem riðuveiki er. Jafnframt skorar félagið á Matvælaráðuneytið, MAST og sveitarstjórnir Borgarbyggðar og Hvalfjarðarsveitar að þær hlutist til um stóraukið viðhald og eftirlit sauðfjárveikivarnargirðinga einkanlega á milli Borgarfjarðar- og Húnavatnssýslna í ljósi nýlegra riðusmita í Miðfjarðarhólfi.“