Sönghópurinn Hljómbrot hélt tónleika. Ljósm. dalir.is

Mikið um að vera síðustu daga á Silfurtúni

Það er búið að vera ansi mikið um gestakomur undanfarið á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Silfurtúni í Búðardal. Á sumardaginn fyrsta komu félagar úr Söngbræðrum í Borgarfirði og sungu inn sumarið. Síðan hefur hún Rósa heimalingur frá Magnússkógum í Búðardal komið þrisvar sinnum í heimsókn, glatt íbúa með uppátækjum sínum og fengið mörg knús í staðinn frá heimilisfólki.

Mikið um að vera síðustu daga á Silfurtúni - Skessuhorn