Fréttir

true

Víkingur Ó. og Skallagrímur töpuðu í Lengjubikarnum

Víkingur Ólafsvík og KV áttust við í riðli 1 í B deild Lengjubikars karla á laugardaginn og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Askur Jóhannsson kom gestunum yfir strax á fyrstu mínútu og korteri seinna skoraði Agnar Þorláksson annað mark KV og staðan 0-2. Luis Romero Jorge minnkaði síðan muninn fyrir Víking eftir tæpan hálftíma leik og…Lesa meira

true

Snæfell tapaði naumlega fyrir Þór Akureyri í fyrsta leik

Þór Akureyri og Snæfell mættust í úrslitakeppni 1. deildar í körfuknattleik kvenna á laugardaginn og fór leikurinn fram í höllinni á Akureyri. Var um að ræða fyrsta leik í einvíginu og þarf að ná þremur sigrum til að komast í úrslitaviðureign á móti Stjörnunni eða KR um eitt sæti í Subway deildinni á næstu leiktíð.…Lesa meira

true

Eldavélin var hjarta heimilisins

Steingerður Jóhannsdóttir opnaði síðastliðinn laugardag ljósmyndasýningu hjá Þremur veggjum, sem er nýr sýningarsalur og listrými á Hellissandi. Fjölmargir gestir komu við opnun sýningarinnar. Sýningin ber nafnið „Húsanna hljóðnaði hjartsláttur.“ Á henni eru 13 stórar ljósmyndir, flestar af eldavélum en einnig af gluggum og eyðibýli. Myndirnar eru prentaðar á sérunninn grófan bómullarpappír sem gefur þeim draumkenndan…Lesa meira

true

Kúabændur í Baulu héldu aðalfund sinn

Aðalfundur Kúabændafélagsins Baulu, sem nær frá sunnanverðu Snæfellsnesi, um Mýrar og Borgarfjörð norðan Skarðsheiðar, var haldinn mánudaginn 20. Mars í Félagsheimilinu Lyngbrekku. Á dagsskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf en þegar henni lauk var Baula og BúVest með sameiginlegan fræðslufund þar sem Guðmundur Jóhannesson sérfræðingur hjá RML og Jón Hjalti Eiríksson lektor hjá LbhÍ héldu fyrirlestra um…Lesa meira

true

Vesturlandsdeild Auðhumlu hélt aðalfund sinn

Deildarfundur Vesturlandsdeildar Auðhumlu svf, kúabændafélags sem nær frá Kjalarnesi, um allan Borgarfjörð, Mýrar og Snæfellsnes, var haldinn 21. mars sl. að Hótel Hamri. Rædd voru málefni Auðhumlu svf og MS ehf og farið yfir ársreikninga félagsins. Að venju voru veittar viðurkenningar til bænda sem höfðu framleitt úrvalsmjólk á árinu 2022. Þeir voru: Gunnlaugsstaðir, Furubrekka, Syðri-Knarrartunga,…Lesa meira

true

Lagt til að kílómetragjald endurspegli notkun bifreiða

Félag íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB) kynnti í byrjun síðustu viku nýja tillögu þess efnis að tekið verði upp kílómetragjald í stað núverandi tekjuöflunar ríkissjóðs af eldsneyti á ökutæki. FÍB hefur þróað reikniformúlu fyrir kílómetragjald sem endurspeglar raunveruleg afnot allra ökutækja af vegakerfinu en mætir um leið þörf fyrir orkuskipti í samgöngum. Kílómetragjaldið geti jafnframt komið í…Lesa meira

true

Passíusálmarnir fluttir í Hallgrímskirkju föstudaginn langa

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar verða fluttir í Hallgrímskirkju í Saurbæ á föstudaginn langa, 7. apríl. Að sögn Steinunnar Jóhannesdóttur, sem haldið hefur utan um verkefnið til fjölda ára, verður verður leikarinn og Skagamaðurinn Jakob Þór Einarsson meðal flytjenda að þessu sinni. Hann var fyrir nokkrum árum í hópi fólks frá Akranesi sem fékk einn hluta verksins…Lesa meira

true

Ný þjóðgarðsmiðstöð vígð

Síðastliðinn föstudag var mikið um dýrðir á Hellissandi þegar nýtt hús þjóðgarðsmiðstöðvar Snæfellsjökuls var tekið í notkun. Við þetta sama tækifæri var nafni þjóðgarðsins breytt í Snæfellsjökulsþjóðgarður, sem er styttra og þjálla heiti. Gestum þjóðgarðsins hefur farið ört fjölgandi undanfarin ár og sækir hann nú heim um hálf milljón gesta á hverju ári. Guðlaugur Þór…Lesa meira

true

Snjókoma og skafrenningur sunnanlands

Í dag gengur í suðaustan 10-18 m/sek með snjókomu eða skafrenningi á öllu sunnanverðu landinu, en snýst í norðan 8-15 m/sek með stöku éljum vestantil síðdegis. Þar er gul viðvörun í gildi í dag. Austan og norðaustan 8-15 og fer að snjóa norðan- og austanlands seinnipartinn og í kvöld. Frost 2 til 12 stig, kaldast…Lesa meira

true

Bregðast þarf hratt við í ljósi banaslyss

Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri sagði í útvarpsfréttum Bylgjunnar í dag að skoða þurfi öryggismál víða á landinu og þar á meðal á gönguleiðinni að fossinum Glymi í Hvalfirði. Þar varð eins og kunnugt er banaslys á miðvikudaginn þegar kona á þrítugsaldri hrapaði til bana. „Það þarf að bregðast við alls staðar þar sem fyrirséð er…Lesa meira