
Bregðast þarf hratt við í ljósi banaslyss
Arnar Már Ólafsson ferðamálastjóri sagði í útvarpsfréttum Bylgjunnar í dag að skoða þurfi öryggismál víða á landinu og þar á meðal á gönguleiðinni að fossinum Glymi í Hvalfirði. Þar varð eins og kunnugt er banaslys á miðvikudaginn þegar kona á þrítugsaldri hrapaði til bana. „Það þarf að bregðast við alls staðar þar sem fyrirséð er að öryggi ferðamanna sé stefnt í hættu. Til dæmis á þessu svæði sem um ræðir þá er yfir vetrartímann fyrirséð að gönguleiðin upp að fossinum þarna austan megin við ána sé mjög varhugaverð,“ sagði Arnar Már í viðtali á Bylgjunni. Bætti hann við að bregðast verði hratt við. „Ég ætla að hóa saman öllum hlutaðeigandi aðilum sem koma að þessu máli. Bæði landeigendum, sveitarfélögum, Björgunarfélagi Akraness, lögreglunni á Vesturlandi og Landsbjörgu. Ræða þetta sameiginlega og sjá hvað við þurfum að gera núna til að stuðla að auknu öryggi þarna á staðnum,“ sagði ferðamálastjóri.