Fréttir

true

Sigurvin kom við í Akraneshöfn

Áhöfnin á Sigurvin ákvað í hádeginu í dag að koma við í Akraneshöfn þar sem siglt var í einn hring fyrir Guðmund St Valdimarsson ljósmyndara. Lagt var af stað til heimahafnar Sigurvins á Siglufirði í morgun frá Reykjavík. Einnig verður í dag komið við í Rifi og Bolungarvík og áætlað að koma til Siglufjarðar klukkan…Lesa meira

true

Styðja að dósamóttaka færist annað

Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar 7. mars síðastliðinn var rætt um hugmyndir um breytingar á starfsemi og skipulagi fyrir Ölduna sem býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjáfun fyrir fatlað fólk. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Á fundinum lagði velferðarnefndin til að Aldan hætti samstarfi við Endurvinnsluna um dósamóttöku.…Lesa meira

true

Gáfu Brák það sem eftir var í félagssjóðnum

Lokið er sögu Lionsklúbbs Borgarness en klúbburinn var stofnaður 2. apríl 1957 og náði því nokkurn veginn hefðbundnum starfslokaaldri. Starfsemin hefur að vísu legið niðri síðustu tvö árin, en síðasta verk klúbbfélaga var að koma við hjá Björgunarsveitinn Brák. Var sveitinni afhent það sem til var í sparibaukum og á bankabók Lionsklúbbsins, alls um hálf…Lesa meira

true

Tafir á því að Baldur sigli

Einhver töf er á því að Breiðafjarðarferjan Baldur komist í seinni ferð dagsins frá Stykkishólmi. Sigla átti klukkan 14:30, áleiðis til Flateyjar og Brjánslækjar, en nú er búið að tilkynna farþegum um borð að vegna bilunar frestist það mögulega til klukkan 16.Lesa meira

true

Vignir G. Jónsson stækkar við sig

Fyrirtækið Vignir G. Jónsson ehf. hóf fyrir rúmum mánuði framkvæmdir á lóð sinni við Smiðjuvelli 4 á Akranesi þar sem byggja á nýja ellefu hundruð fermetra viðbyggingu við núverandi hús. Undirbúningur hófst fyrir ári síðan og segir Jón Helgason framkvæmdastjóri Vignis að stefnan sé að vera flutt inn í byrjun næsta árs og eru menn…Lesa meira

true

Þorvaldur skipstjóri rifjar upp Páskaveðrið 1963

Þorvaldur Guðmundsson skipstjóri á Akranesi er fæddur 24. júní 1939. Hann fór sína fyrstu sjóferð með föður sínum á rauðmaganet átta ára gamall árið 1947. Þær veiðiferðir voru svo árvissar öll bernskuárin, en það var svo 1955 sem hann var skráður á skip í fyrsta sinn. Þegar Þorvaldur fór í fyrsta skipti á sjó hafði…Lesa meira

true

Samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks

Forsætisráðuneytið hefur sett á laggirnar samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks. Meginverkefni þess verður að efla samhæfingu og yfirsýn yfir helstu verkefni og áskoranir í málaflokknum, þvert á ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög. Aldrei hafa fleiri komið til landsins á flótta en nú. Það sem af er ári hafa um 1.300 manns sótt um alþjóðlega vernd og á…Lesa meira

true

Aukið fjármagn til hjálpartækja blindra

Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu velferðarnefndar um aukið fjármagn til kaupa á hjálpartækjum fyrir blinda og sjónskerta. Tillagan á rætur sínar að rekja til þinglokasamninga Flokks fólksins við stjórnarflokkana fyrir síðustu jól. Vandamálið sem þingsályktunartillagan leysir var að fjárframlög vegna sjónhjálpartækja hafa verið óbreytt undanfarin ár, þrátt fyrir að ör þróun hafi orðið á tæknilausnum. Umrædd…Lesa meira

true

Árný Lea og Ísold unnu Upplestrarkeppnina – MYNDSKEIÐ

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi 2023 var haldin í Tónbergi í gærkvöldi fyrir nánast fullu húsi. Tólf nemendur í 7. bekk sem valdir höfðu verið eftir undankeppni úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tóku þátt og voru sex nemendur frá hvorum skóla. Frá Brekkubæjarskóla lásu Aðalheiður Ísold Pálmadóttir, Arnór Dagur Árnason, Aron Kristinn Zumbergs, Hafdís Ylfa Jökulsdóttir,…Lesa meira

true

Senjórítur áttu góða helgi í Borgarnesi

Senjorítur er kvennakór á höfuðborgarsvæðinu skipaður konum sem eru 60 ára og eldri og er sú elsta í hópnum 95 ára. Stjórnandi kórsins er Agouta Joo sem kom frá Ungverjalandi og hefur auðgað tónlistarlíf Íslendinga síðustu þrjá áratugi. Um síðustu helgi lögðu Senjórítur land undir fót og héldu í Borgarnes, nærri 60 manna hópur. „Senjórítur…Lesa meira