Árný Lea og Ísold voru hæstánægðar með sigurinn. Ljósm. vaks

Árný Lea og Ísold unnu Upplestrarkeppnina – MYNDSKEIÐ

Lokahátíð Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi 2023 var haldin í Tónbergi í gærkvöldi fyrir nánast fullu húsi. Tólf nemendur í 7. bekk sem valdir höfðu verið eftir undankeppni úr Brekkubæjarskóla og Grundaskóla tóku þátt og voru sex nemendur frá hvorum skóla. Frá Brekkubæjarskóla lásu Aðalheiður Ísold Pálmadóttir, Arnór Dagur Árnason, Aron Kristinn Zumbergs, Hafdís Ylfa Jökulsdóttir, Hrafnkatla Jóna Þorsteinsdóttir og Stefán Kári Ólafsson. Frá Grundaskóla lásu Árný Lea Grímsdóttir, Heiðdís Tinna Daðadóttir, Hekla Dís Hilmarsdóttir, Lilja Fanney Ársælsdóttir, Styrmir Gíslason og Þóra Guðmundsdóttir.

Árný Lea og Ísold unnu Upplestrarkeppnina - MYNDSKEIÐ - Skessuhorn