
Þorvaldur skipstjóri rifjar upp Páskaveðrið 1963
Þorvaldur Guðmundsson skipstjóri á Akranesi er fæddur 24. júní 1939. Hann fór sína fyrstu sjóferð með föður sínum á rauðmaganet átta ára gamall árið 1947. Þær veiðiferðir voru svo árvissar öll bernskuárin, en það var svo 1955 sem hann var skráður á skip í fyrsta sinn. Þegar Þorvaldur fór í fyrsta skipti á sjó hafði hann vitaskuld ekki hugboð um að sín biði jafn fjölbreyttur sjómannsferill og raun ber vitni, en störf hans hafa alla tíð tengst sjónum. Lengi vel var hann á hinum ýmsu veiðiskipum. Um tíma tók hann þátt í veiðarfæra- og fiskiráðgjöf hjá matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna í Argentínu. Einna stærstan hluta starfsævinnar var hann þó skipstjóri á Akraborginni, en starfsævinni lauk hann 2009 sem yfirhafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum.