
Samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks
Forsætisráðuneytið hefur sett á laggirnar samhæfingarteymi um móttöku flóttafólks. Meginverkefni þess verður að efla samhæfingu og yfirsýn yfir helstu verkefni og áskoranir í málaflokknum, þvert á ráðuneyti, stofnanir og sveitarfélög. Aldrei hafa fleiri komið til landsins á flótta en nú. Það sem af er ári hafa um 1.300 manns sótt um alþjóðlega vernd og á síðasta ári voru umsækjendur um 4.500. Fjöldinn frá 1. janúar 2022 og fram í mars 2023 er meiri en samanlagður fjöldi allra umsækjanda um alþjóðlega vernd á Íslandi fyrir sex ára tímabil, frá 2016 til og með 2021.