Framkvæmdir við nýja húsnæðið hófust í byrjun febrúar og eru sökklar komnir. Ljósm. vaks

Vignir G. Jónsson stækkar við sig

Fyrirtækið Vignir G. Jónsson ehf. hóf fyrir rúmum mánuði framkvæmdir á lóð sinni við Smiðjuvelli 4 á Akranesi þar sem byggja á nýja ellefu hundruð fermetra viðbyggingu við núverandi hús. Undirbúningur hófst fyrir ári síðan og segir Jón Helgason framkvæmdastjóri Vignis að stefnan sé að vera flutt inn í byrjun næsta árs og eru menn jákvæðir um að það takist. Í nýja húsnæðinu verður framleiðsla á svokölluðu masago. Masago eru lituð og krydduð loðnuhrogn og er notað sem „sushi toppings.“ Þessi vara er mest seld til Bandaríkjanna, þar sem henni er aðallega dreift til veitingastaða, en einnig fer töluvert magn til Evrópu. Vignir G. Jónsson hefur framleitt masago til fjölda ára en með stækkuninni er áætlað að efla og jafnframt uppfæra framleiðsluna.