
Á fundi velferðarnefndar Borgarbyggðar 7. mars síðastliðinn var rætt um hugmyndir um breytingar á starfsemi og skipulagi fyrir Ölduna sem býður upp á verndaða vinnu, hæfingu og virkniþjáfun fyrir fatlað fólk. Starf Öldunnar samanstendur af vinnustofu/hæfingu annars vegar og dósamóttöku hins vegar. Á fundinum lagði velferðarnefndin til að Aldan hætti samstarfi við Endurvinnsluna um dósamóttöku.…Lesa meira








