Fréttir

true

Sótt um að byggja þúsund fermetra íbúðarhús og aðeins minna gestahús

Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Skorradalshrepps 1. febrúar síðastliðinn var samþykkt að veita byggingarleyfi fyrir væntanlegt íbúðarhús og gestahús í landi Horns í Skorradal. Stærð væntanlegra húsa vekur óneitanlega athygli. Sótt er um að byggja 992 fermetra íbúðarhús og 722,6 fermetra gestahús. Eigendaskipti urðu að jörðinni síðastliðið vor eftir að Árni Hjörleifsson bóndi á Horni og fyrrverandi…Lesa meira

true

Álftanes komið í Subway deildina eftir sigur á Skallagrími

Álftanes og Skallagrímur áttust við á Álftanesi í gærkvöldi og með sigri gátu heimamenn tryggt sér sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Heimamenn virtust yfirspenntir og smá taugaveiklaðir í byrjun leiks því Skallagrímur komst í 4:9 eftir tæpan tveggja mínútna leik. Álftanes náði þó fljótlega áttum og staðan 15:15 um miðbik…Lesa meira

true

200 milljónir króna til frjálsra félagasamtaka

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra veitti í gær styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Alls var 41 styrkur veittur. Þ.e. 20 verkefnastyrkir og 21 rekstrarstyrkur og nam heildarfjárhæðin um 200 milljónum króna. Úthlutunin fór fram á Reykjavík Natura og voru tveir valdir styrkþegar fengnir til að kynna sín verkefni. Sorgarmiðstöðin kynnti verkefnið…Lesa meira

true

Uppskipun á salti í frostinu

Flutningaskipið Hagland Pioneer lagðist að bryggju í Grundarfirði skömmu eftir hádegið í gær. Þá var hafist handa við að skipa upp 1.900 tonnum af salti í saltgeymsluna við höfnina. Unnið var fram á kvöld til að koma farminum í hús og ekki slegið slöku við. Það voru starfsmenn frá flutningafyrirtækinu Ragnari og Ásgeiri sem sáu…Lesa meira

true

Útflutningsverðmæti sjávarafurða jókst í febrúar

Útflutningsverðmæti sjávarafurða nam 26,5 milljörðum króna í febrúar samkvæmt fyrstu bráðabirgðartölum sem Hagstofan birti í síðustu viku. Í Radarnum, mælaborði sjávarútvegsins, segir að þetta sé rúmlega 14% aukning í krónum talið miðað við febrúar í fyrra. Þar sem gengi krónunnar var tæplega 7% veikara í febrúar en í sama mánuði í fyrra er aukningin nokkuð…Lesa meira

true

Byssusýning á Veiðisafninu Stokkseyri um helgina

Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri verður í ár haldin í samvinnu við verslunina Veiðihornið og Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness. Sýningin verður laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins. Félagsmenn úr Skotgrund – Skotfélagi Snæfellsness verða með fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis ásamt kynningu á starfsemi skotfélagsins. Kennir þar ýmissa grasa og…Lesa meira

true

Vörumiðlun kaupir flutningafyrirtæki Júlla Jóns

Gengið hefur verið frá kaupum á flutningafyrirtæki Júlíusar Jónssonar í Borgarnesi. Kaupandinn er Vörumiðlun, dótturfyrirtæki KS. Júlíus staðfestir þetta í samtali við Skessuhorn. Hann segir að búið sé að handsala kaupin en formlega gangi salan í gegn um næstu mánaðamót. Vörumiðlun mun áfram reka starfsstöð í Borgarnesi en hún er til húsa í Engjaási, og…Lesa meira

true

Fimm Akranesmet hjá sundmönnum ÍA um helgina

Tólf sundmenn frá Sundfélagi Akraness tóku þátt á Ásvallamóti Sundfélags Hafnarfjarðar um helgina. Mótinu lauk á sunnudag en alls tóku 240 keppendur frá 15 félögum þátt. Sundfólk ÍA stóð sig mjög vel. Eitt gull, átta silfur og fjögur brons var niðurstaðan hjá sundfólkinu. Akranesmet var sett í 4×50 metra fjórsundi, blandaðri sveit en hana skipuðu…Lesa meira

true

Guðrún Hildur kosin formaður UMSB

Ársþing Ungmennasambands Borgarfjarðar var haldið í síðustu viku. Í frétt á síðu UMFÍ kemur fram að eitt og annað hafi verið gert á þinginu. Þar tók Guðrún Hildur Þórðardóttir við sem sambandsstjóri UMSB og tekur sæti Sonju Lind Estrajher Eyglóardóttur. Guðrún var áður varasambandsstjóri en Sonja hefur verið sambandsstjóri undanfarin tvö ár. Ólafur Daði Birgisson…Lesa meira

true

Endurbygging C-álmu Grundaskóla komin á fullt og kennslustofum fjölgar

Nú vinna iðnaðarmenn kappsamlega að því að koma nýjum kennslustofum í notkun við Grundaskóla á Akranesi. Aðstaða fyrir list- og verkgreinar er að komast í gagnið á Grundaseli og nú á einungis eftir að ljúka við aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Kennarar í tónlist, myndlist og textíl hafa lokið flutningum. Frístundin er einnig á síðustu metrum flutninga…Lesa meira