
Séð yfir lóðina við Grundaskóla. Ljósm. grundaskoli.is
Endurbygging C-álmu Grundaskóla komin á fullt og kennslustofum fjölgar
Nú vinna iðnaðarmenn kappsamlega að því að koma nýjum kennslustofum í notkun við Grundaskóla á Akranesi. Aðstaða fyrir list- og verkgreinar er að komast í gagnið á Grundaseli og nú á einungis eftir að ljúka við aðstöðu fyrir heimilisfræðina. Kennarar í tónlist, myndlist og textíl hafa lokið flutningum. Frístundin er einnig á síðustu metrum flutninga og hefur hafið sína starfsemi á svæðinu. Þetta kemur fram á heimasíðu skólans, grundaskoli.is.