
Styrkþegar ásamt ráðherra við úthlutunina í gær. Ljósm. Stjórnarráðið.
200 milljónir króna til frjálsra félagasamtaka
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra veitti í gær styrki til verkefna á sviði félags- og velferðarmála. Alls var 41 styrkur veittur. Þ.e. 20 verkefnastyrkir og 21 rekstrarstyrkur og nam heildarfjárhæðin um 200 milljónum króna.
Úthlutunin fór fram á Reykjavík Natura og voru tveir valdir styrkþegar fengnir til að kynna sín verkefni. Sorgarmiðstöðin kynnti verkefnið Hjálp 48 og Hjálparstarf kirkjunnar sagði frá verkefninu Stattu með sjálfri þér - virkni til farsældar.
Hér fyrir neðan má sjá lista yfir styrkþega.

