Fréttir

true

Frábær ferð skíðanemenda í FSN

Nemendur í íþróttaáfanganum ÍÞRÓSK02 í Fjölbrautaskóla Snæfellinga skelltu sér í Hlíðarfjall á Akureyri dagana 20. – 22. febrúar síðastliðinn. Einhverjir nemendur voru að stíga sín fyrstu skrif á skíðum eða bretti en aðrir voru að bæta við kunnáttu sína í skíða- og brettafræðum. Farið var með rútu frá skólanum á mánudagsmorgni og farið beint upp…Lesa meira

true

Höfuðborin stækkunartæki gjörbreyta möguleikum sjónskertra

Ný tegund sjónhjálpartækja gjörbreytir möguleikum og aðstæðum sjónskertra hér á landi. Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu hefur tekið í notkun höfuðborin stækkunartæki sem gerir mörgum lögblindum einstaklingum kleift að sjá hluti og viðburði sem þeir fóru á mis við áður. Um tvær tegundir höfuðborinna stækkunartækja er að…Lesa meira

true

Boðið verður upp á meistaranám í afbrotafræði við HÍ í haust

Frá og með næsta hausti mun Háskóli Íslands bjóða upp á meistaranám í afbrotafræði á vegum námbrautar í félagsfræði. Námið verður í samstarfi við fjölmargar stofnanir innan íslenska réttarkerfisins. Stór og reynslumikill kennarahópur innan og utan háskólans kemur að náminu sem getur fleytt fólki í störf við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingu…Lesa meira

true

Hraunhálsbændur reka Fyrirmyndarbú BÍ

Á Búgreinaþingi Nautgripabænda sem haldið var 23. febrúar síðastliðinn var hjónunum Guðlaugu Sigurðardóttur og Jóhannesi Eyberg Ragnarssyni, ábúendum á Hraunhálsi í Helgafellssveit, veitt Heiðursviðurkenning Nautgripabænda BÍ. Í umsögn um verðlaunin segir: „Á Hraunhálsi er fádæma snyrtimennska í hvívetna, virkni í félagsmálum og ræktunarstarfi er til fyrirmyndar. Auk þess sem búið hefur verið með framúrskarandi árangur…Lesa meira

true

Leggja til að sextán menningarverkefni hljóti styrki

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar hefur lokið úrvinnslu umsókna til menningatengdra verkefna fyrir árið 2023. 32 umsóknir bárust, alls að upphæð tæplega 20 milljónir króna, eða fjórfalt meira en er til úthlutunar, en heildarupphæð styrkja verður 3.520.000 krónur. Fram kemur í fundargerð nefndarinnar að helmingur þeirra umsókna sem bárust hljóta styrk að þessu sinni úr menningarsjóði.…Lesa meira

true

Dósadans á Sæbólinu

Það leiðindaóhapp varð á dögunum í Grundarfirði þegar verið var að flytja fulla poka af dósum til endurvinnslu. Opnaðist pokaloka og dósirnar streymdu niður götuna. Vindurinn tók svo við þeim og þeytti þeim niður götuna og í átt til sjávar með tilheyrandi glamri og látum.  Dugmiklir krakkar í fjáröflun voru búnir að verja talsverðum tíma…Lesa meira

true

Borgarbyggð heiðraði Gunnu Dan

Guðrún Emilía Daníelsdóttir hefur stýrt spinning tímum í Íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi síðastliðin 30 ár. Á laugardaginn stýrði hún sínum síðasta spinning tíma en hún hyggst leggja hjólaskóna á hilluna. Guðveig Eyglóardóttir forseti sveitarstjórnar mætti í tímann og heiðraði Gunnu með því að færa henni blómvönd fyrir hönd Borgarbyggðar. ,,Hið eiginlega ríkidæmi hvers samfélags er falið…Lesa meira

true

Góður árangur keilufólks frá Akranesi

Félagar í Keilufélagi Akraness halda áfram að gera góða hluti. Dagana 12.-19. febrúar fór Ísak Birkir Sævarsson á Vináttuleikana í keilu sem fram fóru í Qatar. Mótshaldarar bjóða uppá fæði og húsnæði en ferðakostnað bera keppendur sjálfir. Ísak náði 3. sæti í liðakeppni í Qatar ásamt Aroni Hafþórssyni úr KFR, Mikael Aroni Vilhelmssyni úr KFR…Lesa meira

true

Rætt við Skagamanninn Inga Fannar í hlaðvarpi Loðnufrétta

Ingi Fannar Eiríksson er fæddur og uppalinn Skagamaður, en faðir hans er Eiríkur Jónsson þekktur aflaskipstjóri á Akurey. Ingi Fannar byrjaði ungur að fara með föður sínum til sjós og var þar í nokkur ár áður en hann skráði sig í viðskiptafræði og fór að starfa hjá sjávarútvegsteymi Íslandsbanka. Ingi Fannar er í dag sviðsstjóri…Lesa meira

true

Gat á sjókví í Ísafjarðardjúpi

Matvælastofnun barst tilkynning frá Háafelli í dag mánudag um gat á netapoka einnar sjókvíar Háafells við Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á kví C5 og er bráðabirgðaviðgerð lokið, samkvæmt tilkynningu Matvælastofnunar. „Samkvæmt upplýsingum Háafells er gatið um 20 cm rifa á 10 m dýpi. Í þessari tilteknu kví voru 115.255 laxaseiði sem…Lesa meira