Svipmynd frá Akratorgi á Akranesi í byrjun júlí 2020. Ljósm. mm.

Leggja til að sextán menningarverkefni hljóti styrki

Menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar hefur lokið úrvinnslu umsókna til menningatengdra verkefna fyrir árið 2023. 32 umsóknir bárust, alls að upphæð tæplega 20 milljónir króna, eða fjórfalt meira en er til úthlutunar, en heildarupphæð styrkja verður 3.520.000 krónur. Fram kemur í fundargerð nefndarinnar að helmingur þeirra umsókna sem bárust hljóta styrk að þessu sinni úr menningarsjóði. Þurfti nefndin því að hafna mörgum frambærilegum og áhugaverðum umsóknum. Við úrvinnslu umsóknanna var horft til áherslna menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2018-2023. Jafnframt var lögð áhersla á að styðja við ný og fjölbreytt verkefni, með það að markmiði að skapa blómlegt menningarlíf á Akranesi.

Leggja til að sextán menningarverkefni hljóti styrki - Skessuhorn