
Ingi Fannar Eiríksson.
Rætt við Skagamanninn Inga Fannar í hlaðvarpi Loðnufrétta
Ingi Fannar Eiríksson er fæddur og uppalinn Skagamaður, en faðir hans er Eiríkur Jónsson þekktur aflaskipstjóri á Akurey. Ingi Fannar byrjaði ungur að fara með föður sínum til sjós og var þar í nokkur ár áður en hann skráði sig í viðskiptafræði og fór að starfa hjá sjávarútvegsteymi Íslandsbanka. Ingi Fannar er í dag sviðsstjóri sölu- og rekstrarsviðs hjá Skeljungi þar sem hann hefur meðal annar sjávarútvegsmál á sinni könnu. Rætt er við Inga Fannar í hlaðvarpi Loðnufrétta, sem fór í loftið fyrr í dag. Hlaðvarpið er áhugavert spjall við Skagamanninn knáa um fyrstu störfin á sjó, hans starf í kringum loðnuvertíðar, olíuflutninga til Íslands og síðast en ekki síst spurninguna; hvort hann hafi smakkað loðnu.