
Boðið verður upp á meistaranám í afbrotafræði við HÍ í haust
Frá og með næsta hausti mun Háskóli Íslands bjóða upp á meistaranám í afbrotafræði á vegum námbrautar í félagsfræði. Námið verður í samstarfi við fjölmargar stofnanir innan íslenska réttarkerfisins. Stór og reynslumikill kennarahópur innan og utan háskólans kemur að náminu sem getur fleytt fólki í störf við ólíkar stofnanir sem fást við glæpi og refsingu í íslensku samfélagi.