Fréttir

true

Rafmagnslaust á morgun á Æðarodda

Vegna viðgerðar verður rafmagnslaust í hesthúsahverfinu Æðarodda við Akranes þriðjudaginn 28. febrúar frá klukkan 09:00 til 16:00. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Nánari upplýsingar:  https://www.veitur.is/bilanir_og_vidgerdir.Lesa meira

true

Í kvöld: Sorg og sorgarviðbrögð, fræðsla og stuðningshópur

Í kvöld, mánudaginn 27. febrúar, verður fræðslukvöld í Safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi, um sorg og sorgarviðbrögð. Prestar Garða- og Saurbæjarprestakalls halda þar erindi um sorg og áföll og leiða samtal um viðfangsefnið. Í framhaldinu verður boðið upp á stuðningshóp fyrir syrgjendur. „Þetta er nýjung hjá okkur í Garða- og Saurbæjarprestakalli að bjóða upp á fræðslukvöld…Lesa meira

true

Ásþungatakmarkanir taka gildi í dag

Vegagerðin var að senda tilkynningu um ásþungatakmarkanir á vegum. Viðauki 1 verður felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá klukkan 13:00 mánudaginn 27. febrúar á eftirfarandi vegum: Akrafjallsvegur, frá Berjadalsá að Urriðaá, nr. 51 Melasveitarvegur nr. 505 Borgarfjarðarbraut nr. 50 Hálsarsveitarvegur að Húsafelli nr. 518 Skorradalur nr. 508 Ákveðið hefur verið að…Lesa meira

true

Vilja sporna við brottfalli unglinga úr íþróttum

Á fundi byggðarráðs Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var kynnt samstarfsverkefni sem Körfuknattleiksdeild Skallagríms og Ungmennasambands Borgarfjarðar standa að með það að markmiði að vinna gegn brottfalli ungmenna úr íþróttum og efla liðsheild. Félögin hafa sótt um styrk í fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ. Í umsókn til UMFÍ er lýst áhyggjum íþróttafélaga um aukið brottfall unglinga úr íþróttum…Lesa meira

true

Loðnukvóti aukinn enn frekar

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra tók í síðustu viku ákvörðun um að undirrita í dag reglugerð þar sem endanlegt útgefið aflamark í loðnu er ákveðið í samræmi við ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Hækkun á hlut Íslands mun því verða alls 147.280 tonn, aflamark í loðnu fyrir íslensku skipin verður því alls 329.460 tonn á vertíðinni sem nú stendur sem…Lesa meira

true

Guðmar Þór á Ástarpungi efstur í Vesturlandsdeildinni

Fyrsta mótið í Vesturlandsdeildinni í hestaíþróttum var haldið föstudagskvöldið 24. febrúar í Faxaborg. Keppt var í fjórgangi. Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni en sex lið etja kappi og eru fimm keppendum í hverju liði. Telja svo þrír efstu knapar úr hverju liði til stiga í liðakeppninni. Að þessu sinni var það lið Hergils/Söðulsholts sem stóð…Lesa meira

true

Vaskir smalar leggja allt í sölurnar

Þegar komið er fram á þennan árstíma leggja menn ýmislegt á sig til að handsama útigangsfé og koma því á hús. Í hvert sinn sem sést til fjár er vaskur hópur smala í Snæfellsbæ sem bregst við. Í dag sást til þriggja kinda í hlíðinni inn við Mávahlíð, útigangskind með tvö lömb. Eftir talsverðan eltingarleik…Lesa meira

true

Óbreytt forgangsröðun og sinnuleysi ekki lengur valkostur að mati ASÍ

Í ályktun sem formannafundur Alþýðusambands Íslands samþykkti síðastliðinn föstudag er hart deilt á landstjórnina vegna þeirra stöðu sem upp er komin á vinnumarkaði og bágum aðstæðum launafólks. Ályktunin hljóðar þannig: „Alvarlegar aðstæður ríkja í íslensku samfélagi. Átök á vinnumarkaði, mikil verðbólga og hnignun velferðakerfisins eru til marks um að stjórnvöldum hefur mistekist að leggja grunn…Lesa meira

true

Brugðist við vegna ábendingar um aðbúnað hrossa

Í tilkynningu frá Matvælastofnun síðastliðinn föstudag kemur fram að 22. febrúar síðastliðinn hafi stofnunin fengið ábendingu vegna hrossahalds á höfuðborgarsvæðinu. „Eftirlit var framkvæmt samdægurs þar sem fram komu frávik við umhirðu hrossanna og aðbúnað. Stofnunin gerði í kjölfarið tímasettar kröfur um úrbætur, þar með talið kröfu um sérstaka umönnun á einu hrossanna. Matvælastofnun mun fylgja…Lesa meira

true

Forréttindi að hjálpa fólki að springa út og blómstra

Rætt við Rúnu Björgu Sigurðardóttur, teymis- og markþjálfa og varaformann FKA á Vesturlandi Skagakonan Rúna Björg hefur síðastliðinn áratug starfað sem einka- og styrktarþjálfari, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á Akranesi. Árið 2012 útskrifaðist hún frá Keili úr ÍAK einkaþjálfaranámi og hóf strax í framhaldinu að þjálfa bæði einstaklinga og hópa. Fljótlega fór hún að bjóða…Lesa meira