Vaskir smalar leggja allt í sölurnar

Þegar komið er fram á þennan árstíma leggja menn ýmislegt á sig til að handsama útigangsfé og koma því á hús. Í hvert sinn sem sést til fjár er vaskur hópur smala í Snæfellsbæ sem bregst við. Í dag sást til þriggja kinda í hlíðinni inn við Mávahlíð, útigangskind með tvö lömb. Eftir talsverðan eltingarleik slapp kindin. Annað lambið náðist en hitt lagðist til sunds í Tunguósnum. Jökull Gíslason frá Álftavatni var með í för og sá hann fram á að lambhrútur þessi myndi drukkna í ósnum ef honum yrði ekki umsvifalaust komið til bjargar. Skellti hann sér því út í vatnið og náði til kauða. Kristinn Jónasson bæjarstjóri er fjallageit mikil og áhugamaður um hreinsmölum. Var hann með smölunum í för og náði meðfylgjandi myndum af Jökli í jökulköldu vatninu.

Vaskir smalar leggja allt í sölurnar - Skessuhorn