
Ásþungatakmarkanir taka gildi í dag
Vegagerðin var að senda tilkynningu um ásþungatakmarkanir á vegum. Viðauki 1 verður felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá klukkan 13:00 mánudaginn 27. febrúar á eftirfarandi vegum:
Akrafjallsvegur, frá Berjadalsá að Urriðaá, nr. 51
Melasveitarvegur nr. 505
Borgarfjarðarbraut nr. 50
Hálsarsveitarvegur að Húsafelli nr. 518
Skorradalur nr. 508
Ákveðið hefur verið að takmarka ásþunga við 7 tonn á Snæfellsnesvegi, frá gatnamótum við Stykkishólmsveg inn Álftafjörð og Skógaströnd að gatnamótum við Heydalsveg við Bíldhól. Takmörkun tekur gildi klukkan 13:00 mánudaginn 27. febrúar.“