
Þessir glaðhlakkalegu karlar á myndinni eru þeir Ingimundur og Jón. Auk þess að vera báðir sauðfjárbændur stýra þeir af einurð starfi Bridgefélags Borgarfjarðar. Í réttunum um helgina ákváðu þeir að blása í lúðra og láta vetrarstarf félagsins hefjast mánudaginn 25. september næstkomandi. Sem fyrr verður spilað í félagsheimilinu Logalandi í Reykholtsdal klukkan 20. Þangað eru…Lesa meira








