
Héldu prjónamessu á Staðarfelli
Það var ljúf og notaleg stemning þegar haldin var prjónamessa á Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum sunnudaginn 3. september undir yfirheitinu Hugur og handverk. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogskirkju þjónaði fyrir altari, frú Sigríður Hrund Pétursdóttir flutti hugleiðingu um Rætur lands og þjóðar og tónlist var í höndum Duo Barazz sem samanstendur af Láru Bryndísi Eggertsdóttur organista í Grafarvogskirkju og Dorthe Hojland saxofónleikara. Eftir messu var gestum boðið upp á skoðun í gamla húsmæðraskólanum á Staðarfelli áður en húsið verður lagt undir gagngerar endurbætur.