Fréttir

true

Nýr strandblaksvöllur vígður á Hvanneyri

Í gær var strandblaksvöllur á Hvanneyri vígður í upphafi Sverrismóts í knattspyrnu. Að sögn Kristjáns Guðmundssonar formanns Ungmennafélagsins Íslendings þá er það félagið sem stendur að verkefninu, en það var blaklið Íslendings, Hvannirnar, sem vígðu völlinn. Þeim til heiðurs hefur völlurinn verður nefndur Hvannavöllur. Hvannir hafa starfrækt lið í yfir 30 ár á Hvanneyri.Lesa meira

true

Tveir fengu rautt í tapi Kára gegn Árbæ

Árbær og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Fylkisvelli í Árbæ. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en heimamenn í Árbæ komust yfir í leiknum á 23. mínútu með marki frá Jordan Tyler. Sex mínútum fyrir hálfleik jafnaði Hektor Bergmann Garðarsson metin fyrir Kára eftir…Lesa meira

true

Veik von Víkings úr sögunni eftir tap á móti Þrótti Vogum

Víkingur Ólafsvík gerði ekki góða ferð í sveitarfélagið Voga þegar þeir heimsóttu lið Þróttar í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn. Markalaust var eftir fyrri hálfleikinn en hlutirnir fóru loks að gerast í þeim seinni. Ólafur Örn Eyjólfsson kom heimamönnum yfir eftir tæpar tíu mínútur og skömmu síðar varð Guðbjörn Smári Ólafsson leikmaður Víkings…Lesa meira

true

Skagamenn stigu stórt skref í áttina að Bestu deildinni eftir sigur á Njarðvík

Njarðvík og ÍA léku á laugardaginn í 21. og næstsíðustu umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu og var leikurinn á Rafholtsvellinum í Njarðvík. Skagamenn náðu undirtökunum snemma leiks þegar varnarmaðurinn Johannes Vall átti góðan sprett upp allan völlinn á sjöundu mínútu. Hann sendi boltann á fjær og beint á kollinn á Árna Salvar Heimisson sem hamraði…Lesa meira

true

Héldu prjónamessu á Staðarfelli

Það var ljúf og notaleg stemning þegar haldin var prjónamessa á Staðarfelli á Fellsströnd í Dölum sunnudaginn 3. september undir yfirheitinu Hugur og handverk. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir sóknarprestur í Grafarvogskirkju þjónaði fyrir altari, frú Sigríður Hrund Pétursdóttir flutti hugleiðingu um Rætur lands og þjóðar og tónlist var í höndum Duo Barazz sem samanstendur af…Lesa meira

true

„Markmið FKA er að deila gleði og að kynnast öðrum konum“

Andrea Ýr Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur er virk í forystu Vesturlandsdeildar FKA Vesturlandsdeild Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) heldur aðalfund sinn næstkomandi fimmtudagskvöld á Landnámssetrinu í Borgarnesi. Deildin er fimm ára frá því í vor en FKA á landsvísu er mun eldra, eða 25 ára félagsskapur sem í dag telur um 1.400 félagskonur. Af þessu tilefni ræddi…Lesa meira

true

Fyrirhugað er að byggja við leikskólann Ugluklett

Nú stendur yfir breyting á aðalskipulagi Borgarbyggðar vegna fyrirhugaðrar stækkunar á leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Verkefnið er á frumstigi og liggur því ekki enn fyrir áætlanir um fjölda fermetra eða fjölgun leikskólaplássa. Í fundargerð skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar frá 4. september sl. kemur fram að fjarlægja eigi einbýlishúsalóðir af skipulagi til að koma bílastæðum fyrir…Lesa meira

true

Tóku þátt í Evrópumóti iðn- og verkgreina

Dagana 5. – 9. september fór fram í Gdańsk í Póllandi Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills 2023. Ellefu ungir og efnilegir keppendur frá Íslandi tóku þátt í jafn mörgum iðn- og verkgreinum, en Ísland hefur aldrei átt jafn marga þátttakendur og á Evrópumótinu í ár. Verðlaunaafhending og lokaathöfn Euroskills 2023 fór fram með pompi…Lesa meira

true

Sérsveitin var send til Grundarfjarðar

Í gærkvöldi var nokkur viðbúnaður lögreglu við íbúðarhús í Grundarfirði. Tilkynnt hafði verið um mann sem handlék skotvopn. Sérsveit ríkislögreglustjóra var með töluverðan viðbúnað á vettvangi, en í ljós kom að vopnið reyndist skaðlaus eftirlíking. Ásmundur Kristinn Ásmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vesturlandi, staðfesti í samtali við fréttastofu visir.is að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi handtekið manninn…Lesa meira

true

Hönnunarvinna og frumkvöðlahugsun með Knex

Á heimasíðu Grundaskóla á Akranesi er sagt frá áhugaverðu kennslutæki til að víkka skilning nemenda á stærðfræði. Um er að ræða svokallaða Knex-kubba, en þeir eru afar gagnlegir þegar unnið er með margvísleg stærðfræðihugtök og frumkvöðlahugsun. Knex kubbar eru reyndar fáanlegir í ýmsum útgáfum og einnig fyrir leikskólabörn. „Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum…Lesa meira