
Hér hefur sköpun átt sér stað með Knex. Ljósmyndir: Grundaskóli
Hönnunarvinna og frumkvöðlahugsun með Knex
Á heimasíðu Grundaskóla á Akranesi er sagt frá áhugaverðu kennslutæki til að víkka skilning nemenda á stærðfræði. Um er að ræða svokallaða Knex-kubba, en þeir eru afar gagnlegir þegar unnið er með margvísleg stærðfræðihugtök og frumkvöðlahugsun. Knex kubbar eru reyndar fáanlegir í ýmsum útgáfum og einnig fyrir leikskólabörn. „Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þá voru 7. bekkingar algjörlega hugfangnir af verkefni dagsins. Margvísleg farartæki og mannvirki voru í byggingu. Sumt var unnið eftir teikningum en annað byggt eftir eigin hugmyndum. Í sumu var unnið með fallhraða en í öðru tilbúna mótora. Hér skorti ekki áhuga og vilja til að læra og leika sér um leið,“ segir í frétt Grundaskóla.