Fréttir

true

Eyþór Ingi með tónleika í Dalíu

Eyþór Ingi Gunnlaugsson tónlistarmaður mun halda tónleika í Dalíu í Búðardal laugardaginn 2. september. Dalía er gamla Bankahúsið að Miðbraut 15. Nú er þar bæði gistiaðstaða og salur sem m.a. hefur verið notaður til tónleikahalds, en verið er að fara af stað með meiri starfsemi þar. Tónleikarnir hefjast kl. 20 en húsið opnar kl. 18.…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu á móti Haukum í hörkuleik

Það var ansi mikið undir í gærkvöldi þegar lið Hauka og ÍA mættust í 2. deild kvenna í knattspyrnu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Fyrir viðureignina var ÍA með 32 stig í öðru sætinu og Haukar í því þriðja með 31 stig en Haukar leikið einum leik meira í deildinni. Með sigri hefðu Skagakonur getað náð…Lesa meira

true

Andlát – Halldór Árnason í Stykkishólmi

Hólmarinn Halldór Árnason lést 27. ágúst síðastliðinn, sjötugur að aldri. Hann fæddist 18. mars 1953 í Stykkishólmi, sonur hjónanna Árna Helgasonar, póst- og símstjóra og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur, kennara og póstafgreiðslumanns. Halldór varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1973, lauk viðskiptafræði frá HÍ 1978 og meistaraprófi í hagfræði frá Uppsalaháskóla 1983. Halldór starfaði lengstum hjá hinu…Lesa meira

true

„Ég vissi að Arnarvatnsheiðin væri sérstök og gæti fallið í kramið“

Arinbjörn á Brekkulæk í Miðfirði tekinn tali – ítarlegt viðtal Sögusvið okkar er að þessu sinni norður í Miðfirði og hálendið upp af honum. Venjulega tengjast viðmælendur í Skessuhorni Vesturlandi með beinum hætti í gegnum búsetu, en að þessu sinni er tengingin sú að viðmælandi okkar hefur í bráðum 45 ár haft atvinnu sína af…Lesa meira

true

Ýmis brot í umferðinni

Í liðinni viku voru höfð afskipti af alls 55 ökumönnum í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi vegna þess að þeir óku of hratt og eru tveir ökumenn grunaðir um ölvun við akstur. Afskipti voru höfð af ökumanni sem framvísaði erlendu ökuskírteini en við skoðun kom í ljós að hann var sviptur ökuréttindum. Aksturinn var því stöðvaður…Lesa meira

true

Kærulaus tónlist með hversdagslegu ívafi

Rætt við tónlistar- og Skagamanninn Jónfrí Tónlistarmaðurinn Jónfrí sendi á dögunum frá sér smáskífu með lögunum Andalúsía og Sumarið er silungur og eru þetta fyrstu lögin af væntanlegri breiðskífu hans. Jónfrí er listamannsnafn Jóns Frímannssonar sem er grafískur hönnuður, pabbi í Vesturbænum og plötusnúður á eftirlaunum. Jón fæddist á Akranesi og bjó þar til rúmlega…Lesa meira

true

Hraðfrystihús Hellissands hagræðir í rekstri samhliða sölunni á Örvari

Fram kom í fréttum í lok júlí síðastliðins að Hraðfrystihús Hellissands (HH) hefur selt fjölveiðiskipið Örvar SH-777 til Odda á Patreksfirði. Skipið verður afhent nýjum kaupendum 18. desember næstkomandi og mun þá leysa Núp BA-69 af hólmi. Örvar hefur verið fengsælt og gott skip í útgerð HH, en það er 410 rúmlestir, smíðað í Noregi…Lesa meira

true

Kynnti skýrslu starfshópa um sjávarútvegsauðlindina

Lokaniðurstöður starfshópa Auðlindarinnar okkar voru kynntar í dag af matvælaráðuneytinu. Skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur var gefin út á sama tíma. „Vinnan sem unnin hefur verið með Auðlindinni okkar er mikilvægt skref til að skapa skilyrði til aukinnar sáttar um sjávarútveg. Hagsmunir almennings eru settir í forgrunn og endurspeglast til dæmis í sterkum umhverfisáherslum…Lesa meira

true

Fengu styrk til náms í Háskóla Íslands

Háskóli Íslands veitti í gær 34 framúrskarandi námsmönnum styrki úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við athöfn í Hátíðasal skólans. Styrkþegarnir koma alls staðar af landinu og hafa skráð sig í 24 námsleiðir. Frá því að Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta Háskóla Íslands var settur á laggirnar árið 2008 hefur á fimmta hundrað nýnema tekið við styrkjum…Lesa meira

true

Íbúar standa sig vel í flokkun sorps

Á dögunum barst sveitarfélögum endurgreiðsla frá Úrvinnslusjóði fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins og miðað við endurgreiðslu á landsvísu hafa íbúar í Borgarbyggð staðið sig afar vel í sorpflokkun. Fjórðu tunnunni var bætt við um mánaðamótin maí/júní. Fram kemur á vef Borgarbyggðar að sveitarfélagið hvetur íbúa til þess að halda áfram að flokka vel og nýta…Lesa meira