
Svandís Svavarsdóttir. Ljósm. Stjórnarráðið
Kynnti skýrslu starfshópa um sjávarútvegsauðlindina
Lokaniðurstöður starfshópa Auðlindarinnar okkar voru kynntar í dag af matvælaráðuneytinu. Skýrslan Auðlindin okkar – sjálfbær sjávarútvegur var gefin út á sama tíma. „Vinnan sem unnin hefur verið með Auðlindinni okkar er mikilvægt skref til að skapa skilyrði til aukinnar sáttar um sjávarútveg. Hagsmunir almennings eru settir í forgrunn og endurspeglast til dæmis í sterkum umhverfisáherslum og tillögum um aukið gagnsæi og hækkun veiðigjalda í samræmi við fjármálaáætlun,“ sagði Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra.