
Veiðiheimildir af Örvari verða nú nýttar á önnur skip fyrirtækisins. Ljósm. af
Hraðfrystihús Hellissands hagræðir í rekstri samhliða sölunni á Örvari
Fram kom í fréttum í lok júlí síðastliðins að Hraðfrystihús Hellissands (HH) hefur selt fjölveiðiskipið Örvar SH-777 til Odda á Patreksfirði. Skipið verður afhent nýjum kaupendum 18. desember næstkomandi og mun þá leysa Núp BA-69 af hólmi. Örvar hefur verið fengsælt og gott skip í útgerð HH, en það er 410 rúmlestir, smíðað í Noregi árið 1992.