Halldór Árnason. Ljósm. glh

Andlát – Halldór Árnason í Stykkishólmi

Hólmarinn Halldór Árnason lést 27. ágúst síðastliðinn, sjötugur að aldri. Hann fæddist 18. mars 1953 í Stykkishólmi, sonur hjónanna Árna Helgasonar, póst- og símstjóra og Ingibjargar Gunnlaugsdóttur, kennara og póstafgreiðslumanns. Halldór varð stúdent frá Menntaskólanum á Laugarvatni 1973, lauk viðskiptafræði frá HÍ 1978 og meistaraprófi í hagfræði frá Uppsalaháskóla 1983. Halldór starfaði lengstum hjá hinu opinbera og sagðist í viðtali við Skessuhorn hafa lagt áherslu á að staldra ekki of lengi við í hverju starfi, gjarnan 5-7 ár. Hann tókst því á við fjölbreytt verkefni í gegnum tíðina. Hann starfaði m.a. í menntamálaráðuneytinu, hjá Þjóðhagsstofnun og Námsgagnastofnun. Hann var skriftofustjóri á fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins í um áraug og skrifstofustjóri og staðgengill ráðuneytisstjóra í forsætisráðuneytinu. Var um tíma forstöðumaður stjórnsýslu- og fjármála hjá Hafnarfjarðarbæ. Að lokum starfaði Halldór hjá Samtökum atvinnulífsins til 2018. Síðustu árin starfaði Halldór ötullega að ýmsum málefnum fyrir sinn gamla heimabæ, m.a. sem formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar.

Andlát - Halldór Árnason í Stykkishólmi - Skessuhorn