Fréttir

true

VR hættir viðskiptum við Íslandsbanka

Stéttarfélagið VR hefur ákveðið að hætta bankaviðskiptum sínum við Íslandsbanka og leitar nú tilboða hjá öðrum fjármálafyrirtækjum um þjónustuna. Í tilkynningu frá stjórn VR kemur fram að félagið telur brot bankans við sölumeðferð á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka með öllu óásættanleg. „VR kallaði eftir því að stjórn bankans og það starfsfólk sem ábyrgð ber á…Lesa meira

true

Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu er að lækka

Samkvæmt samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) er íbúðaverð að lækka á höfuðborgarsvæðinu. Vísitala íbúðaverðs þar lækkaði um 0,8% á milli mánaða, en síðastliðna þrjá mánuði hefur hún lækkað um 1,2%, síðastliðna sex mánuði hafði hún hins vegar hækkað um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 0,8%. Ef einungis er horft til sérbýlis, þ.e.…Lesa meira

true

Árleg kaffisala verður í Ölveri á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag mun KFUM og K standa fyrir sinni árlegu kaffisölu í Ölveri við rætur Hafnarfjalls. Þar gefst tækifæri til að heimsækja staðinn, kynnast hlýlegu umhverfi hans og húsakosti í Ölveri. Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum og styrkja um leið starfsemina. Kaffisalan verður frá klukkan 14-17. Loks er í tilkynningu bent á…Lesa meira

true

Lokið við endurgerð hinnar formfögru Ólafsvíkurréttar

Í viðtali sem birtist við Guðrúnu Tryggvadóttur í Ólafsvík í Skessuhorni haustið 2014 sagði hún meðal annars: „Þetta er ákaflega fallegt svæði uppi í Krókabrekkunum hérna við Ólafsvík þar sem gamla réttin er. Ég held það séu margir sem hafa áhuga og vilja taka þátt í endurgerð gömlu réttarinnar. Það sem þarf er að einhverjir…Lesa meira

true

Víkingur Ó. í þriðja sæti eftir sigur á Haukum

Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð á Ásvelli í Hafnarfirði í gærkvöldi þegar þeir sóttu lið Hauka í 2. deild karla í knattspyrnu. Víkingur þurfti nauðsynlega á sigri að halda til að halda sér í toppbaráttunni eftir slakt gengi undanfarið á meðan Haukar sigla lygnan sjó um miðja deild. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en…Lesa meira

true

Sveitakeppni í golfi fer fram um helgina

Það verður nóg að gera hjá kylfingum á Vesturlandi um næstu helgi, frá föstudegi til sunnudags. Um helgina verður sveitakeppni í 2. deild karla í golfi leikin á Garðavelli á Akranesi. Átta golfklúbbar taka þátt. Í Borgarnesi verður leikið á Hamarsvelli í 2. deild kvenna og þar taka tíu golfklúbbar þátt þeirra á meðal, Golfklúbburinn…Lesa meira

true

Skagamenn með öruggan sigur á Ægi

ÍA vann sinn þriðja sigur í röð í Lengjudeildinni í gærkvöldi þegar liðið tók á móti botnliði Ægis á Norðurálsvelli. Leikurinn fór rólega af stað en fyrsta markið kom á 12. mínútu eftir gott samspil heimamanna. Albert Hafsteinsson setti boltann í gegnum vörn Ægis út til hægri þar sem Breki Þór Hermannsson gaf hann fyrir…Lesa meira

true

Grunnskólastarf að hefjast á Vesturlandi – samantekt um alla skólana

Nú líður að hausti og fjölskyldur í landshlutanum að komast í fyrri rútínu eftir sumarleyfi og ferðalög. Grunnskólar á Vesturlandi eru nú að komast á fullt skrið og eru skólastjórnendur spenntir fyrir komandi vetri. Vel hefur gengið að manna stöður og að vanda eru fjölmörg og áhugaverð verkefni á döfinni í starfi grunnskólanna í landshlutanum.…Lesa meira

true

Hreinsaði til í kringum vinnustaðinn

Gróður hefur sprottið ágætlega að undanförnu, einnig á þeim stöðum sem hann er ekki endilega velkominn, svo sem við gangstéttarkanta og í innkeyrslum. Valdimar K. Sigurðsson blaðamaður á Skessuhorni var orðinn leiður á að sjá óræktina í kringum vinnustað sinn, vopnaðist skóflu og hreinsaði illgresi og gras úr köntum Skessuhornsbrautar á Akranesi í gær. Fín…Lesa meira