Árleg kaffisala verður í Ölveri á sunnudaginn

Næstkomandi sunnudag mun KFUM og K standa fyrir sinni árlegu kaffisölu í Ölveri við rætur Hafnarfjalls. Þar gefst tækifæri til að heimsækja staðinn, kynnast hlýlegu umhverfi hans og húsakosti í Ölveri. Hægt verður að gæða sér á ljúffengum veitingum og styrkja um leið starfsemina. Kaffisalan verður frá klukkan 14-17.

Árleg kaffisala verður í Ölveri á sunnudaginn - Skessuhorn