
Börn og starfsfólk Brekkubæjarskóla trommuðu gegn einelti síðastliðinn vetur. Ljósm. vaks.
Grunnskólastarf að hefjast á Vesturlandi – samantekt um alla skólana
Nú líður að hausti og fjölskyldur í landshlutanum að komast í fyrri rútínu eftir sumarleyfi og ferðalög. Grunnskólar á Vesturlandi eru nú að komast á fullt skrið og eru skólastjórnendur spenntir fyrir komandi vetri. Vel hefur gengið að manna stöður og að vanda eru fjölmörg og áhugaverð verkefni á döfinni í starfi grunnskólanna í landshlutanum. Skessuhorn sló á þráðinn til skólastjóranna á Vesturlandi og ræddi stuttlega við þá um komandi skólaár.