Ólafsvíkurrétt endurhlaðin og er hið glæsilegasta mannvirki. Ljósm. Ólafsvíkurrétt á FB

Lokið við endurgerð hinnar formfögru Ólafsvíkurréttar

Í viðtali sem birtist við Guðrúnu Tryggvadóttur í Ólafsvík í Skessuhorni haustið 2014 sagði hún meðal annars: „Þetta er ákaflega fallegt svæði uppi í Krókabrekkunum hérna við Ólafsvík þar sem gamla réttin er. Ég held það séu margir sem hafa áhuga og vilja taka þátt í endurgerð gömlu réttarinnar. Það sem þarf er að einhverjir ýti þessu af stað. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta er mikil vinna.“ Þetta sagði Guðrún, en hún stóð þá um haustið fyrir fundi í Átthagastofu Snæfellsbæjar þar sem fjallað var um endurgerð gömlu Ólafsvíkurréttarinnar, verkefnið kynnt og því aflað stuðnings. Guðrún hafði misserin áður undirbúið jarðveginn fyrir þetta verkefni. Sótti hún m.a. um leyfi Minjastofnunar fyrir því að endurbyggja fjárréttina og fá fyrsta styrkinn sem rann til verkefnisins.

Lokið við endurgerð hinnar formfögru Ólafsvíkurréttar - Skessuhorn