
Frá og með haustinu mun hefðbundið hótelhald leggjast niður á Glymi, þegar staðurinn fær hlutverk aðseturs þeirra sem sótt hafa um alþjóðlega vernd. Ljósm. úr safni.
Ríkið tekur Hótel Glym á leigu fyrir fólk sem sótt hefur um alþjóðlega vernd
Frá og með 1. október næstkomandi mun Vinnumálastofnun, fyrir hönd íslenska ríkisins, leigja Hótel Glym í Hvalfirði til allt að tveggja ára. Þar verða hýstir allt að 80 umsækjendur um alþjóðlega vernd hér á landi. Samsetning hópsins sem þar mun dvelja liggur ekki fyrir að svo stöddu. Þetta kemur fram á vef Hvalfjarðarsveitar. Á sama tíma verður því ekki hefðbundinn hótelrekstur að ræða á Hótel Glymi.