Fréttir

true

Ævar Þór skrifar Martröð

Leikarinn og rithöfundurinn Ævar Þór Benediktsson skrifaði um miðjan júlí undir samning við Sagafilm og RÚV um skrif á nýrri leikinni þáttaseríu fyrir sjónvarp. Ævar segir í tilkynningu sinni á facebook að þáttaserían muni koma til með að verða ráðgátu-hryllings-þriller fyrir unglinga og eldri, stúttfull af húmor og hjarta. Þáttaröðin mun heita Martröð en ekki…Lesa meira

true

Stofnuðu rafverktakafyrirtæki og vilja innleiða snjallhúsið til Íslands

Rætt við Arnar Grétarsson og Katarzynu Nocuń sem saman reka rafverktakafyrirtækið Raffix Arnar Grétarsson er alinn upp á bænum Höll í Þverárhlíð í Borgarfirði en býr í dag í Borgarnesi ásamt kærustu sinni Katarzynu Nocuń, eða Kasia eins og hún er gjarnan kölluð. Kasia er frá Póllandi en kom til Íslands til að starfa á…Lesa meira

true

Endurbótum að ljúka við smábátahöfnina í Búðardal

Unnið hefur verið að endurbótum á smábátahöfninni í Búðardal síðustu daga og fer þeim senn að ljúka. Fram kemur á þjónustuvef Dalabyggðar að skipt hefur verið um stagkeðjur, ankeri fyrir bryggju og landfestur. Jafnframt voru endurnýjuð innsiglingarljós og flóðlýsing ásamt því að bryggja var yfirfarin að öðru leyti. Í framhaldi af þessum framkvæmdum verður svo…Lesa meira

true

Rúgur í Reykholtsdal

Þegar rætt er um íslenskan landbúnað er kornrækt ekki endilega það fyrsta sem kemur upp í hugann. En vegna hlýnandi veðurs í landinu hafa betri skilyrði skapast og korn er nú ræktað víða um land auk þess sem gerðar hafa verið tilraunir með ræktun hafra og rúgs. Meðal þeirra sem það hafa reynt er Magnús…Lesa meira

true

Pósthlaupið verður á laugardaginn

Pósthlaupið verður haldið á laugardaginn í Dölum. Um er að ræða skemmtilegt utanvegahlaup eftir gamalli póstleið sem liggur frá Hrútafirði yfir í Búðardal. Ragnar Kristinsson, viðskiptastjóri hjá Póstinum, bregður sér í hlutverk hlaupastjóra um helgina. „Veðurspáin er góð, hlaupa- og gönguveður eins og best verður á kosið og tilvalið að taka laugardagshlaupið í stórbrotinni náttúru.…Lesa meira

true

Mikið um hraðakstur í umdæminu

Rúmlega 50 ökumenn eru grunaðir um of hraðan akstur í liðinni viku í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Tveir ökumenn eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þá reyndist einn ökumaður vera sviptur ökuréttindum þegar af honum voru höfð afskipti. Einn var stöðvaður á nagladekkjum sem fullsnemmt er að brúka núna…Lesa meira

true

Segja olíufélögin hafa lítilsvirt neytendur og valdið þeim tjóni

„Íslensku olíufélögin eru aðlöguð fákeppni og virðast stundum gleyma grunngildum góðra viðskipta um virðingu og þjónustulund gagnvart viðskiptavinum.“ Þannig er komist að orði í nýlegri færslu á heimasíðu Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB). Ástæða þessara skrifa er sú að í vor var hætt að selja 95 oktana bensín hér á landi og skyndilega, án aðvörunar til…Lesa meira

true

Sæferðir gátu ekki beðið svara frá Vegagerðinni og sögðu upp öllu starfsfólki

Sæferðir eru í eigu Eimskips og hefur fyrirtækið m.a. sinnt rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs. Fyrirtækið sagði í gær upp öllum 22 starfsmönnum sínum í ljósi óvissu um hvort Sæferðir muni áfram sinna ferjusiglingum yfir Breiðafjörð. Tilboð fyrirtækisins í siglingar fyrir árin 2023-2026 reyndist yfir kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar og þrátt fyrir að nýja skipið Röst eigi að hefja…Lesa meira

true

Matvælastofnun kærir húnvetnska bændur til lögreglu

„Matvælastofnun hefur kært tvo bændur á Norðurlandi vestra til lögreglu fyrir að hundsa fyrirmæli yfirdýralæknis. Þeir hafa neitað að afhenda stofnuninni kindur sem þeir höfðu fengið frá nágrannabæ en þar hafði allt fé verið skorið niður vegna riðusmits.“ Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST. „Það er álit stofnunarinnar að með synjun sinni stofni bændurnir…Lesa meira

true

Eins og að lifa aðra Íslandssögu

Rætt við Pál Bergþórsson frá Fljótstungu Árið 2000 var Páll Bergþórsson veðurfræðingur heiðraður á alþjóðlegri ráðstefnu fyrir fjölþættan skerf sinn til veðurvísinda. Voru þar m.a. tilgreindar hafísrannsóknir, veðurvísindi og rannsóknir á víxláhrifum manns og náttúru. En margt fleira mætti til telja sem hann hefur afrekað og lagt til samfélagsins. Páll fagnar hundraðasta afmælisdegi sínum í…Lesa meira