Fréttir

true

Fékk golfkylfu í höfuðið

Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í sjúkraflutning í Grundarfjörð nú rétt í þessu. Samkvæmt heimildum Skessuhorns hafði maður fengið golfkylfu í höfuðið og eftir skoðun hjá lækni var talið ráðlegt að flytja hann undir læknishendur í Reykjavík. Tildrög óhappsins liggja ekki fyrir og ekki var búið að skrá málavöxtu í gagnabanka lögreglu þegar Skessuhorn leitaði þar upplýsinga…Lesa meira

true

Mikill erill hjá lögreglu á Írskum dögum um helgina

Bæjarhátíðin Írskir dagar fór fram um helgina á Akranesi og var í nógu að snúast hjá lögreglu alla helgina, sérstaklega laugardag og sunnudag. Að sögn Ásmundar Kristins Ásmundssonar yfirlögregluþjóns hjá Lögreglunni á Vesturlandi var mikið um ölvunarmál, slagsmál og æsing og töluvert um ölvun hjá þeim sem voru undir 18 ára aldri. Talsvert var um…Lesa meira

true

Veginum um Kjalarnes lokað í kvöld

Í kvöld á milli klukkan 19:00 og 05:00 í nótt verður Brautarholtsvegur á Kjalarnesi og Hringvegur (1) malbikaðir. Brautarholtsvegi verður lokað og Hringveginum lokað til suðurs milli kl. 22 og 05. Vegagerðin bendir á hjáleiðir um Hvalfjarðarveg (47), Kjósarskarð (48) og Mosfellsdal (36).Lesa meira

true

Reynir tapaði stórt fyrir Úlfunum

Reynir Hellissandi og Úlfarnir léku á laugardaginn í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu á miðri Ólafsvíkurvöku og var leikurinn á gervigrasvellinum í Snæfellsbæ. Það var ljóst snemma í leiknum að heimamenn áttu við ofurefli að etja enda voru Úlfarnir í öðru sæti deildarinnar. Haukur Steinn Ragnarsson kom Úlfunum yfir eftir rúman korters leik…Lesa meira

true

Víða er þörf fyrir grisjun í vötnum landsins

Fátt er skemmtilegra en fara með stöng og veiða silung í vötnum. Þetta er jafnvel gott fjölskyldusport og ekki skemmir þegar von er á að sá stóri bíti á agnið. Víða í vötnum er þó þörf fyrir verulega meiri grisjun. Slíkt er beinlínis nauðsynlegt til að vötnin verði ekki ofsetin sem aftur þýðir að fiskurinn…Lesa meira

true

Skemmtiferðaskip eiga viðkomu á Akranesi

Tvö af þeim þremur skemmtiferðaskipum sem væntanleg eru á Akranes í sumar hafa undanfarna daga verið á ferðinni. Á laugardaginn kom Seabourn Venture með 250 farþega og lá við ankeri utan við höfnina meðan farþegar voru ferjaðir í land. Í morgun kom svo Seabourn Ovation með um 600 farþega og lá við ankeri utan við…Lesa meira

true

Skallagrímur tapaði fyrir Árborg

Árborg og Skallagrímur áttust við í áttundu umferð 4. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Jáverk-vellinum á Selfossi. Skallagrímsmenn hófu leikinn af krafti, pressuðu heimamenn hátt uppi á vellinum en voru kannski aðeins of djarfir í byrjun. Aron Freyr Margeirsson kom Árborg yfir á 5. mínútu og síðan skoraði Kristinn Sölvi…Lesa meira

true

Víkingur hélt toppsætinu með þriðja sigrinum í röð

Víkingur Ólafsvík tók á móti Þrótti Vogum í toppslag í 2. deild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Ólafsvíkurvelli. Víkingur komst yfir í leiknum á 21. mínútu þegar Mikael Hrafn Helgason skoraði úr endurtekinni vítaspyrnu eftir að Þórhallur Ísak Guðmundsson markvörður Þróttar hafði varið fyrra vítið. Aðeins mínútu síðar tvöfaldaði Daði Kárason…Lesa meira

true

Borgarbyggð tapar fyrir Landsrétti girðingarmáli í Króki

Landsréttur kvað 23. júní síðastliðinn upp dóm þar sem sveitarfélagið Borgarbyggð tapar máli sem Gunnar Jónsson eigandi Króks í Norðurárdal vísaði til réttarins í kjölfar þess að hafa tapað því fyrir héraðsdómi. Málið snýst um greiðsluþátttöku sveitarfélagsins í girðingu sem Gunnar lét reisa á mörkum afréttar og Krókslands. Vísaði hann til 1. mgr. 6 greinar…Lesa meira

true

Fín dagskrá og stemning á Ólafsvíkurvöku – myndasyrpa

Ólafsvíkurvakan fór fram um helgina með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráin hófst á föstudaginn með crossfit á sparkvellinum fyrir börn á aldrinum 6-15 ára og fjölmenntu þau á viðburðinn. Síðan var íþróttaálfurinn í Sjómannagarðinum og fór hann með börnin í létta leikfimi sem þau höfðu gaman af. Eftir það var „silent“ diskó í íþróttahúsinu…Lesa meira