Aaron Palomares læknir og Una Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur tóku þátt í litahlaupinu með börnum sínum. Ljósm. af.

Fín dagskrá og stemning á Ólafsvíkurvöku – myndasyrpa

Ólafsvíkurvakan fór fram um helgina með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa. Dagskráin hófst á föstudaginn með crossfit á sparkvellinum fyrir börn á aldrinum 6-15 ára og fjölmenntu þau á viðburðinn. Síðan var íþróttaálfurinn í Sjómannagarðinum og fór hann með börnin í létta leikfimi sem þau höfðu gaman af. Eftir það var „silent“ diskó í íþróttahúsinu og dorgveiðikeppni á Norðurgarðinum þar sem var góð veiði. Loks fengu keppendur grillaðar pylsur og drykki með, auk þess sem allir keppendur fengu verðlaunapening. Um kvöldið voru síðan tónleikar í Sjómannagarðinum þar sem Stebbi Jak tróð upp og síðan tóku Garðar og Siggi við og í þremur fyrstu lögunum söng Stebbi Jak með þeim félögum.

Fín dagskrá og stemning á Ólafsvíkurvöku - myndasyrpa - Skessuhorn