Fréttir

true

Frískápur opnaður á Akranesi – minnkum matarsóun

Í liðinni viku opnaði frískápur við Smiðjuvelli 9 á Akranesi, til móts við dósamóttökuna, Búkollu og Trésmiðjuna Akur. Frískápur er deiliskápur sem hefur það markmið að minnka matarsóun með því að deila neysluhæfum mat milli fólks. Öllum er frjálst að setja í og taka úr skápnum, gjaldfrjálst, hvenær sem þeim hentar en skápurinn er opinn…Lesa meira

true

Björn Axel tryggði Víkingi sigur á móti KF

KF og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Ólafsfjarðarvelli. Fyrri hálfleikurinn var býsna fjörugur og lítið gefið eftir. Fyrsta mark leiksins kom á 26. mínútu þegar Björn Axel Guðjónsson skoraði fyrir gestina eftir hornspyrnu. Einhverjir vildu meina að brotið hefði verið á varnarmanni KF í aðdraganda…Lesa meira

true

Skagakonur unnu stórsigur á KH

Eftir tvo tapleiki í röð í 2. deild kvenna í knattspyrnu sótti lið ÍA Knattspyrnufélagið Hlíðarenda heim á föstudagskvöldið og var viðureignin á Valsvellinum. Skagakonur voru fyrir leikinn með þrettán stig eftir sjö leiki á meðan KH var með aðeins fjögur stig. ÍA komst yfir á sjöttu mínútu með marki Unnar Ýrar Haraldsdóttur eftir klafs…Lesa meira

true

18 holur spilaðar á Skógarstrandarvegi

Aðfaranótt sunnudagsins 25. júní fór fram miðnæturgolfmót á Skógarstrandarvegi (54-20) í Dalabyggð. Mótið hófst á veginum rétt hjá Valshamri og endaði á veginum við Dranga. Spilaðar voru 18 holur eftir „velli“ sem útbúinn hafði verið á veginum en á honum eru reyndar fleiri en 18 holur. Var uppleggið því slíkt að búið var að merkja…Lesa meira

true

Þriðji sigur Skagamanna í röð í Lengjudeildinni

Selfoss og ÍA áttust við í hörkuleik í Lengjudeild karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn á Jáverk-vellinum á Selfossi. Fyrirliðinn Arnór Smárason kom gestunum í forystu á nítjándu mínútu með góðu skoti fyrir utan teig í hægra hornið og sjö mínútum eftir það skallaði Indriði Áki Þorláksson boltann í markið eftir hornspyrnu Arnórs,…Lesa meira

true

Bærinn fullur af fólki

Skemmtiferðaskipið Nieuw Statendam varpaði akkerum á ytri höfninni í Grundarfirði í gær. Svo var hafist handa við að ferja flesta af tæplega 2.700 farþegum í land þar sem þeir gátu farið í þær skoðunarferðir sem þeir voru búnir að skrá sig í. Flestir farþeganna fara upp í rútur og fara hringinn um Snæfellsnes en svo…Lesa meira

true

G.Run hf hélt sumarhátíð

Þær Hólmfríður Hildimundardóttir og Rósa Guðmundsdóttir voru kampakátar við að djúpsteikja gómsæt þorskstykki fyrir starfsfólk G.Run hf síðasta fimmtudag. Þá hélt fyrirtækið sumarhátíð fyrir starfsmenn en síðasti vinnsludagur var föstudaginn 23. júní fyrir sumarstoppið. Boðið var upp á fisk og franskar með tilheyrandi meðlæti og var vel látið af kræsingunum.Lesa meira

true

Hver kynslóð þarf að bæta við verk fyrri kynslóða með nýsköpun, þannig verða framfarir

Viðtal við Sturlu Böðvarsson úr safni Skessuhorns frá árinu 2010 Sturlu Böðvarsson þarf vart að kynna fyrir landslýð, hann er fyrir löngu þjóðþekktur maður. Bæði hefur hann starfað sem bæjarstjóri í Stykkishólmi, verið alþingismaður, ráðherra og forseti Alþingis. Með slíka reynslu í farteskinu hefur einstaklingur aðra yfirsýn yfir málefni líðandi stundar og aðra framtíðarsýn en…Lesa meira

true

Hin raunverulegu verðmæti eru í sveitum landsins

Viðtal við Hlédísi Sveinsdóttur frá árinu 2010 í Skessuhorni Hlédís er fædd og uppalin á sunnanverðu Snæfellsnesi, nánar tiltekið á bænum Fossi í Staðarsveit, næstelst fjögurra systkina. “Ég hef alltaf dáðst að foreldrum mínum fyrir að hafa gert heiðarlega tilraun til að koma mér til manns,” segir Hlédís spurð um uppvöxtinn í sveitinni. “Maður sér…Lesa meira