Ágústa Sverrisdóttir er einn umsjónarmanna frískápsins á Akranesi, hvar fólk getur komið með eða tekið mat gjaldfrjálst.

Frískápur opnaður á Akranesi – minnkum matarsóun

Í liðinni viku opnaði frískápur við Smiðjuvelli 9 á Akranesi, til móts við dósamóttökuna, Búkollu og Trésmiðjuna Akur. Frískápur er deiliskápur sem hefur það markmið að minnka matarsóun með því að deila neysluhæfum mat milli fólks. Öllum er frjálst að setja í og taka úr skápnum, gjaldfrjálst, hvenær sem þeim hentar en skápurinn er opinn allan sólarhringinn. Frískápa sem þennan má finna víðs vegar í heiminum, þ.m.t. á nokkrum stöðum á Íslandi.

Frískápurinn er staðsettur á Smiðjuvöllum 9 á Akranesi, til móts við dósamóttökuna, Búkollu og Trésmiðjuna Akur.

„Ég var nýbúin að sjá frískáp tekinn í gagnið á Selfossi og fannst vanta svona hérna á Akranes. Þannig ég fór aðeins að viðra þessa hugmynd við fólk í kringum mig og allir voru mjög jákvæðir fyrir þessu. Svo gerðist þetta bara frekar hratt. Amma Andrea fór á stúfana og talaði við Fjöliðjuna og Trésmiðjuna Akur um að koma upp frískáp hér. Fjöliðjan útvegaði okkur svo þennan gám til afnota. Við fengum svo ísskáp og frysti frá Hver og eigum von á öðrum skáp undir þurrvörur innan skamms. Skápurinn er fyrst og fremst til að minnka matarsóun þannig það má hver sem er koma með eitthvað hingað eða taka eitthvað. Það er mikilvægast að vörur séu merktar með dagsetningu, en auðvitað má koma hingað með mat sem er farinn yfir síðasta söludag. Við vitum öll að óopnaðar vörur eru oft góðar mun lengur en stimpillinn segir til um. Mig langar að hvetja fyrirtæki og rekstraraðila til jafns við einstaklinga til að kynna sér frískápinn og athuga hvort hann geti hentað þeim, til að minnka matarsóun,“ segir Ágústa Sverrisdóttir, ein umsjónarmanna frískápsins, og bætir við að frískápurinn og hugmyndin um hann sé samfélagslegt verkefni. Hún vonast til þess að fólk beri virðingu fyrir staðnum og hugmyndinni. „Mig langar að fólk sé meðvitað um þetta í samfélaginu og beri virðingu fyrir hugmyndinni því að frískápurinn er í allra þágu. Það væri líka frábært að hafa fólkið með okkur í þessu svo við getum öll hjálpast að við að halda skápnum snyrtilegum,“ segir Ágústa. En hvernig hefur gengið fyrstu dagana? „Fólk er búið að taka ótrúlega vel í þetta, á þessum örfáu dögum síðan við byrjuðum og mér finnst það alveg frábært! Þá eiga allir sem hafa komið að framkvæmdinni miklar þakkir skyldar, fyrir að hafa aðstoðað við að gera frískápinn á Akranesi að veruleika.“

Á Facebook-síðunni Frískápur / Freedge – 300 Akranes má finna allar upplýsingar um frískápinn og þar koma einnig inn myndir, tilkynningar og stöðuuppfærslur um hvað sé að finna í Frískápnum hverju sinni.

Frystiskápur og kæliskápur eru á staðnum.
Frískápur opnaður á Akranesi – minnkum matarsóun - Skessuhorn