Fréttir

true

Magnús B og Steinunn gefa upplýsingaskilti í Hvanneyrarkirkjugarð

Á undanförnum árum hefur verið unnið að endurbótum á legstaðaskrá Hvanneyrarkirkjugarðs. Nokkur leiði voru ekki skráð og eins vantaði nokkuð upplýsingar um fæðingardaga og ár og eins hvar  viðkomandi átti heima. Sóknarnefndin fékk Magnús B. Jónsson til að vinna að endurbótum að legstaðaskránni og lauk því verki síðastliðinn vetur. Þá eru óskráð legstæði nokkurra einstaklinga…Lesa meira

true

Landsmót 50+ í Stykkishólmi gekk mjög vel – MYNDASYRPA

Það var frábært veður á Landsmóti 50 ára og eldri sem haldið var í Stykkishólmi um helgina. Að sögn Gunnhildar Gunnarsdóttur framkvæmdastjóra HSH gekk framkvæmd mótsins frábærlega og hún segir að svona mót sé ekki haldið nema með öflugum sjálfboðaliðum sem skiluðu sínu mjög vel. Fjöldi þátttakenda var yfir meðallagi, voru um 320 en Gunnhildur…Lesa meira

true

Lokadagur í kofabyggðinni í Grundarfirði

Fyrir helgina lauk kofasmiðjunni í Grundarfirði en það hafði verið starfrækt síðustu tvær vikur. Kofasmiðjan var í umsjón Thors Kolbeinssonar en þár gátu krakkar fæddir 2011 til 2013 tekið til hendinni og smíðað kofa eða aðra smíðagripi. Síðasta daginn var uppskerunni fagnað og kveiktur varðeldur þar sem grillaðir voru sykurpúðar, pylsur og poppað yfir opnum…Lesa meira

true

Aldursflokkameistaramót Íslands var á Akureyri um helgina

Um síðustu helgi var Aldursflokkameistaramót Íslands í sundi haldið á Akureyri. Keppendur á mótinu voru stelpur 14 ára og yngri og strákar 15 ára og yngri og tóku 217 keppendur frá 14 félögum um allt land þátt í mótinu. Til að öðlast keppendarétt á mótinu þurfti sundfólkið að synda undir lágmarkstímum. Sundfélag Akraness mætti til leiks…Lesa meira

true

Viðreisn vill að þing verði kallað saman til að ræða sölu Íslandsbanka

Þingflokkur Viðreisnar hefur farið fram á að Alþingi verði kallað saman sem fyrst vegna niðurstöðu Fjármálaeftirlitsins um lögbrot við sölu Íslandsbanka. „Þingmenn Viðreisnar telja mikilvægt að þingið ræði þá alvarlegu stöðu sem upp er komin og taki afstöðu til fyrri kröfu stjórnarandstöðunnar um skipan rannsóknarnefndar til að rannsaka málsatvik sölunnar og ferlisins við hana frá…Lesa meira

true

Skallagrímur vann góðan sigur á Álftanesi

Skallagrímur og Álftanes mættust í 7. umferð 4. deildar karla í gærkvöldi og fór leikurinn fram í blíðskaparveðri á Skallagrímsvelli. Viktor Ingi Jakobsson kom Skallagrími yfir á sjöundu mínútu með frábæru skoti fyrir utan vítateig en Mariusz Baranowski skoraði fyrir Álftanes úr aukaspyrnu átta mínútum síðar. Ekki voru fleiri mörk skoruð í fyrri hálfleik og…Lesa meira

true

Lions afhendir styrk fyrir saunatunnu

Fimmtudaginn í síðustu viku mættu meðlimir Lionsklúbbs Grundarfjarðar upp í sundlaug og afhentu veglega peningagjöf fyrir saunatunnu sem komin er upp við Sundlaugina. Safnað var fyrir tunnunni á kútmagakvöldi félagsins fyrr á árinu og nú er hún uppsett og tilbúin. Þetta er mikil og góð viðbót við íþróttamannvirki bæjarins enda ekki verið hægt að fara…Lesa meira

true

Sirkusþema á Hvalfjarðardögum – MYNDASYRPA

Hvalfjarðardagar voru haldnir liðna helgi en í ár var Sirkusþema í skreytingum. Lögðu íbúar mikið á sig við að skreyta hús sín og nærumhverfi sem gladdi svo sannarlega gesti og gangandi. Skemmtidagskrá stóð yfir alla helgina. Á föstudeginum var kvöldvaka í Álfholtsskógi þar sem Maggi í Stuðlabandinu hélt uppi stuðinu. Mikið var um að vera…Lesa meira

true

Góður gangur í holugerð

Föstudaginn 23. júní síðastliðinn var lokið við að bora fimmtu holuna fyrir orkuskiptin í sundlauginni í Grundarfirði. Borað var niður á 234 metra dýpi sem er svipað og í síðustu holum. Haldið verður áfram að bora í næstu viku en vatn í þessum holum er frá 2 lítrum á sekúndu upp í 4 til 6…Lesa meira

true

Kári í neðri hlutanum eftir tap á móti toppliði Reynis

Reynir Sandgerði tók á móti Kára í níundu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu í gær og var leikurinn á Brons vellinum í Sandgerði. Heimamenn komust yfir í leiknum með marki frá Kristófer Páli Viðarssyni tíu mínútum fyrir hálfleik og hann var aftur á skotskónum í byrjun þess seinni þegar hann tvöfaldaði forystu Reynis, staðan…Lesa meira