
Sirkusþema á Hvalfjarðardögum – MYNDASYRPA
Hvalfjarðardagar voru haldnir liðna helgi en í ár var Sirkusþema í skreytingum. Lögðu íbúar mikið á sig við að skreyta hús sín og nærumhverfi sem gladdi svo sannarlega gesti og gangandi. Skemmtidagskrá stóð yfir alla helgina. Á föstudeginum var kvöldvaka í Álfholtsskógi þar sem Maggi í Stuðlabandinu hélt uppi stuðinu. Mikið var um að vera á Hlöðum á laugardeginum þar sem Sirkus Íslands sýndi listir sínar, félagar frá Dreyra teymdu undir börnum á hestum og auðvitað var í boði popp og andlitsmálning. Þá var opið á Hernámssetrið og í sund, en 18 stiga hiti mældist á Hlöðum um miðjan dag. Safnið hans Jóns í Gröf var til sýnis á laugardeginum og einnig garður þeirra hjóna, Jóns og Rutar. Systkinin í Hlíð stóðu fyrir tónleikum í Hallgrímskirkju á sunnudeginum og það var Líf í lundi í Álfholtsskógi þar sem m.a. voru víkingabúðir og mandölugerð úr skógarefni.