Horft í átt að höfninni þar sem fjöldi fólks var í gönguferð um bæinn. Ljósm.tfk

Bærinn fullur af fólki

Skemmtiferðaskipið Nieuw Statendam varpaði akkerum á ytri höfninni í Grundarfirði í gær. Svo var hafist handa við að ferja flesta af tæplega 2.700 farþegum í land þar sem þeir gátu farið í þær skoðunarferðir sem þeir voru búnir að skrá sig í. Flestir farþeganna fara upp í rútur og fara hringinn um Snæfellsnes en svo er stór hluti sem kýs að eyða deginum í að skoða Grundarfjörð. Þá iðar bærinn af lífi og nóg að gera hjá þjónustufyrirtækjum bæjarins.

Fólk í biðröð eftir því að komast aftur í bátana sem flytja þá um borð í skipið. Ljósm. tfk.
Bærinn fullur af fólki - Skessuhorn