Dagmar Björk Ástvaldsdóttir var ákveðin í leiknum.

18 holur spilaðar á Skógarstrandarvegi

Aðfaranótt sunnudagsins 25. júní fór fram miðnæturgolfmót á Skógarstrandarvegi (54-20) í Dalabyggð. Mótið hófst á veginum rétt hjá Valshamri og endaði á veginum við Dranga. Spilaðar voru 18 holur eftir „velli“ sem útbúinn hafði verið á veginum en á honum eru reyndar fleiri en 18 holur. Var uppleggið því slíkt að búið var að merkja ákveðnar holur sem hitta átti ofan í en forðast átti aðrar holur á veginum, því þær gátu gefið refsistig. Góð mæting var á mótið og myndaðist þar frábær stemning, að sögn Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur sem aðstoðaði við skipulagningu mótsins.

18 holur spilaðar á Skógarstrandarvegi - Skessuhorn