Fréttir

true

Ný búð í Búðardal – Mögulega sú minnsta á landinu

Símaklefinn í Búðardal hefur fengið nýtt hlutverk en nú er hægt að kaupa þar ýmsar vörur í sjálfsafgreiðslu. Má þar nefna Hvera-rúgbrauð, handverk og blómaáburð. Það er Dísa Sverrisdóttir á Reykhólum sem bakar rúgbrauðið í hver á Reykhólum en hún hefur í nokkur sumur selt rúgbrauð og aðrar vörur í símaklefanum þar í þorpi. Heimamenn…Lesa meira

true

Slíta viðræðum um einkarekinn grunnskóla í Laugargerði

Aukafundur var haldinn í sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps í gær. Var þar rædd staðan á viðræðum við óstofnað ehf. um rekstur einkarekins skóla í Laugargerði og leigu eigna sveitarfélagsins í Laugargerði. Eru það foreldrar barna í Laugargerðisskóla sem standa að baki óstofnuðu ehf. og hafa haft þá hugmynd að búa til einkarekinn skóla í Laugargerði…Lesa meira

true

Niðurrif samþykkt að Borgarbraut 55

Iðnaðarhúsið á lóðinni Borgarbraut 55 í Borgarnesi, þar sem síðast voru til húsa Bifreiðaþjónusta Harðar og Lífland, mun innan tíðar verða rifið. Borgarbyggð keypti húsið árið 2020 í kjölfar þess að þáverandi starfsemi rúmaðist ekki lengur á staðnum vegna breytinga á skipulagi svæðisins. Var það fyrirtækið AXL 05 ehf. sem fékk lóðinni úthlutað fyrr á…Lesa meira

true

Starfsaldursviðurkenningar veittar í fyrsta sinn hjá Borgarbyggð

Starfsfólk Borgarbyggðar fékk viðurkenningu fyrir starfsaldur á árshátíð sveitarfélagsins í mars síðastliðnum og voru það alls 28 einstaklingar. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkar viðurkenningar eru veittar hjá sveitarfélaginu og verður hér eftir fastur liður ár hvert, en þetta kemur fram í tilkynningu. Eiríkur Ólafsson fjármálastjóri er með lengstan starfsaldur hjá sveitarfélaginu, eða 41…Lesa meira

true

Markasúpa með mjög vondu bragði

Það er óhætt að segja að boðið hafi verið upp á markaveislu þegar Hafnir og Reynir Hellissandi mættust í A riðli 5. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var viðureignin í Nettóhöllinni í Reykjanesbæ. Eftir sjö mínútna leik höfðu heimamenn í Höfnum séð til þess að boltinn hafði hafnað þrisvar sinnum í netinu, staðan…Lesa meira

true

Íþróttamót Hestamannafélagsins Borgfirðings

Íþróttamót Borgfirðings og Líflands fór fram á annan í Hvítasunnu í Borgarnesi. Rúmlega 80 skráningar voru á mótið og þótt veðurspáin hafi ekki verið góð, slapp þetta ótrúlega vel til og fór ekki að rigna fyrr en í síðustu úrslitunum og í skeiðkeppninni. Fjórgangur opinn flokkur Nr. 1. Halldór Sigurkarlsson og Karen frá Hríshóli 6,67…Lesa meira

true

Hjólað, hlaupið og gengið yfir Skarðsheiði

Hjólreiðafélag Vesturlands fór laugardaginn 3. júní í sína árlegu ferð yfir Skarðsheiði. Hjólarar fóru rúmlega 20 kílómetra leið, lögðu af stað rétt ofan við Hreppslaug í Skorradal klukkan 11 og enduðu við þjóðveginn neðan við sumarbúðirnar í Ölveri. Hlauparar úr hlaupahópnum Flandra voru samferða hjólafólkinu yfir heiðina og einnig var nokkuð um göngufólk, sem gekk…Lesa meira

true

Oft er gott að biðja um leyfi

Skessuhorni baðst beiðni um að því yrði vinsamlegast komið á framfæri við hestamenn að æskilegt er að biðja um leyfi áður en farið er með hrossahópa yfir lönd annarra. Einkum á þetta við þegar gróður er viðkvæmur og jafnvel enn blautur. Það að biðja um leyfi kostar ekkert, en ef leyfi er ekki veitt, þarf…Lesa meira

true

Öll sýni frá Syðri-Urriðaá reyndust neikvæð

Matvælastofnun hafa nú borist lokaniðurstöður rannsókna Tilraunastöðvar HÍ að Keldum á öllum sýnum sem rannsökuð voru í tengslum við niðurskurð á bænum Syðri-Urriðaá í Miðfirði og reyndust þau öll neikvæð. Niðurskurðurinn var fyrirskipaður eftir að kind á bænum sem keypt hafði verið árið 2020 frá bænum Bergsstöðum reyndist vera með riðu. Þeirri kind var lógað…Lesa meira

true

Tilraunaverkefni fær hátt í 13 milljónir í styrk

Í vikunni barst jákvætt svar frá Byggðastofnun sem úthlutað hafði tæpum þrettán milljónum króna í styrk vegna tilraunaverkefnis sem snýst um að samþætta og opna akstur úr Búðardal í Borgarnes fyrir bæði framhaldsskólanemendur og almenning. Þannig verður meðal annars hægt að bjóða framhaldsskólanemum í Dalabyggð skólaakstur úr Búðardal  í Menntaskóla Borgarfjarðar í Borgarnesi. Markmiðið er…Lesa meira