Fréttir

true

Fiskurinn er óvenjulega stór á Vatnasvæði Lýsu

„Það hefur verið mikið af fiski á Vatnasvæði Lýsu núna og fiskurinn er óvenjulega stór,“ segir Óskar Örn Gíslason sem var við veiðar um helgina. Hann þekkir vel til, hefur veitt þarna síðan hann var polli. „Ég fékk tíu fiska fyrir nokkrum dögum og svo aftur á sunnudaginn. Fiskurinn er búinn að taka grimmt í…Lesa meira

true

Skrúðganga frá Akratorgi – myndband

Nemendur, kennarar, foreldrar og aðrir úr Brekkubæjarskóla á Akranesi skelltu sér í skrúðgöngu í morgun. Þar með hófst formlega Karnival skólans sem var til hádegis á lóð Brekkubæjarskóla þar sem boðið var upp á ýmsa skemmtun. Þeir nemendur sem vildu gátu mætt í búningum og virtist vera að þeir hefðu tekið vel í það. Þá…Lesa meira

true

Kári í neðri hlutanum eftir tap á móti KFS

KFS og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og var leikurinn á Týsvelli í Vestmannaeyjum. Fyrir leik voru bæði lið með einn sigur í farteskinu eftir fjóra leiki í neðri hluta deildarinnar og þurftu því nauðsynlega á stigum að halda. Í fyrri hálfleik voru Káramenn meira með boltann en ógnuðu…Lesa meira

true

Kvennareið Borgfirðings

Í gær fór fram Kvennareið hestamannafélagsins Borgfirðings. Um 40 konur voru skráðar í reiðina og var mikið glens og gaman. Byrjaði reiðtúrinn í Laxárholti og var farinn skemmtilegur hringur þar. Síðan var boðið upp á súpu og ball í reiðhöllinni í Laxárholti. Þema ferðarinnar var lopi og hjálpartæki.Lesa meira

true

Krabbameinsfélagið veitir styrki til sólarvarnarkaupa á leikskólum -myndir

Í nýliðnum maímánuði veitti Krabbameinsfélag Borgarfjarðar styrki til allra leikskólanna í Borgarbyggð. Styrkurinn er eyrnamerktur til kaupa á sólarvörn fyrir leikskólabörn og vekja þannig athygli á forvörnum er lúta að húðkrabbameini, en eins og margir vita getur sólbruni og skemmd í húð af völdum sólar verið hættulegur, sér í lagi fyrir börn og ungmenni. Þær…Lesa meira

true

Akranesleikarnir í sundi tókust með ágætum

Um nýliðna helgi fóru Akranesleikarnir í sundi fram í Jaðarsbakkalaug. Metþátttaka var á mótinu í ár en alls tóku 386 krakkar þátt frá 12 félögum. Það var því líf og fjör í lauginni um helgina enda stungu sundkrakkarnir sér alls 1.839 sinnum til sunds. Í Grundaskóla gistu 325 sundmenn, þjálfarar og fararstjórar, og í skólanum…Lesa meira

true

Hundur gengur í skrokk á lambi – lausaganga hunda bönnuð við Akrafjall

Nýverið var Ólafur Sigurgeirsson bóndi á Þaravöllum í Hvalfjarðarsveit látinn vita af því að við rætur Akrafjalls skammt frá Berjadalsá væri illa slasað dýrbitið lamb. Ólafur fór á staðinn og fann lambið og kom því heim á bæ til aðhlynningar. Hann segir áverka á lambinu þess eðlis að ótrúlegt er að það lifi. Hann segir…Lesa meira

true

Víkingur Ó. kominn í toppbaráttuna á ný

KFG og Víkingur Ólafsvík mættust í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og fór leikurinn fram á Samsungvellinum í Garðabæ. Víkingur mátti þola stórtap í síðustu umferð á móti ÍR á meðan KFG vann góðan útisigur á Völsungi. Það var snemma ljóst að gestirnir voru komnir í Garðabæinn til að fá sem mest út…Lesa meira

true

Verkfallsaðgerðir stigmagnast eftir árangurslausan samningafund

Fundi fulltrúa BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga hjá Ríkissáttasemjara lauk á öðrum tímanum í nótt án niðurstöðu. Víðtækar verkfallsaðgerðir BSRB og aðildarfélaga þess í 29 sveitarfélögum hófust því í morgun, mánudaginn 5. júní. Verkföllin ná m.a. til starfsfólks í leikskólum, sundlaugum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum í 29 sveitarfélögum. Hér á Vesturlandi gætir áhrifa…Lesa meira

true

ON vill reisa tuttugu hleðslustöðvar í Borgarnesi

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar 2. júní síðastliðinn var lagt fram erindi frá Orku Náttúrunnar (ON), en fyrirtækið hefur hug á að kaupa lóð að Digranesgötu 4 í Borgarnesi og reisa þar hleðslugarð sem myndi rúma 20 hleðslutengingar. ,,Þjóðvegur 1 liggur um Borgarnes og er lykil staðsetning á leið norður eða vestur og gefur…Lesa meira