Kristín Gísladóttir á Uglukletti tók við styrknum.

Krabbameinsfélagið veitir styrki til sólarvarnarkaupa á leikskólum -myndir

Í nýliðnum maímánuði veitti Krabbameinsfélag Borgarfjarðar styrki til allra leikskólanna í Borgarbyggð. Styrkurinn er eyrnamerktur til kaupa á sólarvörn fyrir leikskólabörn og vekja þannig athygli á forvörnum er lúta að húðkrabbameini, en eins og margir vita getur sólbruni og skemmd í húð af völdum sólar verið hættulegur, sér í lagi fyrir börn og ungmenni.

Krabbameinsfélagið veitir styrki til sólarvarnarkaupa á leikskólum -myndir - Skessuhorn