Fréttir

true

Gísli ÍS dreginn af strandstað

Á kvöldflóðinu í gærkvöldi tókst að draga smábátinn Gísla ÍS á flot af strandstað á Breiðuvík á Snæfellsnesi. Báturinn strandaði á sunnudagskvöldið og tókst skipverja að komast af sjálfsdáðum í land. Báturinn var dreginn af strandstað af tveimur léttabátum af varðskipinu Freyju. Þá var ein beltagrafa í landi sem aðstoðaði við verkið. Gekk þetta vel…Lesa meira

true

Sælusumrin löng – Dúó Áróra heldur tónleika á Vesturlandi

Píanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir og söngkonan Solveig Óskarsdóttir skipa tveggja manna tónlistarflokkinn Dúó Áróra. Þær munu ferðast um Vesturland á næstu dögum og halda þrenna tónleika. Fyrstu tónleikarnir verða í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi laugardaginn 10. júní, þeir næstu í Borgarneskirkju þriðjudaginn 13. júní og þriðju og síðustu verða í Stykkishólmskirkju föstudaginn sextánda en allir…Lesa meira

true

Ganga um Búðardal tvisvar í viku

Þegar blaðamaður Skessuhorns var á ferð í Búðardal á mánudaginn veitti hann eftirtekt hópi göngufólks sem var á ferð meðfram Dalbrautinni. Var þar á ferð gönguhópurinn Stormur sem er gönguhópur Félags eldri borgara í Dölum. Oft eru um tíu manns sem ganga í hvert sinn en í ár eru 12 ár síðan gönguhópurinn var stofnaður.…Lesa meira

true

Yfirlitssýning um verk Philippe Ricart opnuð í dag á Blönduósi

Á Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi verður í dag klukkan 16:30 opnuð yfirlitssýning á textílverkum listamannsins Philippe Ricart. Philippe bjó lengst af á Akranesi en hann lést árið 2021. Hann hlaut margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín og var m.a. bæjarlistamaður Akraness árið 1997. Á veggspjaldi sýningarinnar ásamt stuttu ágripi yfir feril Philipppe segir m.a: „Philippe fæddist í…Lesa meira

true

Bíllaus dagur hjá bæjarstjóranum

“Ég var bíllaus í dag og greip því bara næsta lausa tæki til að fara á í vinnuna,” sagði Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Eins og flestir vita er Haraldur jafnframt bóndi á Vestri-Reini í næstu sveit og því var ekki um langan veg að fara á Massey Ferguson með áburðardreifarann.…Lesa meira

true

Yfirlýsing frá forráðamönnum barna við Laugargerðisskóla

Hópur foreldra og forráðamanna barna við Laugargerðisskóla hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna ákvörðunar sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps um að slíta viðræðum við foreldra og óstofnað ehf. um þjónustusamning vegna einkarekins grunnskóla í Laugargerði og leigu á eignum sveitarfélagsins þar. Í yfirlýsingunni er sveitarstjórn harðlega gagnrýnd fyrir vinnubrögð sín við þær breytingar á skólamálum sem…Lesa meira

true

Smábátur strandaði í Breiðuvík

Smábátur strandaði í Breiðuvík á Snæfellsnesi, skammt austan við Arnarstapa, á tíunda tímanum í gærkvöldi. Einn var um borð í bátnum og komst hann í land af sjálfsdáðum, hruflaðist aðeins og var fluttur á heilsugæsluna í Ólafsvík til aðhlynningar. Skipverjinn hafði samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar. Gæslan kallaði út varðskipið Freyju sem statt var í grenndinni…Lesa meira

true

Slysavarnadeildin Líf gaf endurlífgunardúkkur

Fulltrúar frá Slysavarnadeildinni Líf á Akranesi færðu í þessari viku Brekkubæjarskóla og Grundaskóla endurlífgunardúkkur að gjöf. Alls fékk hvor skóli 20 dúkkur að gjöf en fyrir voru til tíu dúkkur í skólunum og því er nú hægt að kenna alls 50 nemendum að hnoða í einu.   Verkefnið sem um ræðir heitir Börnin bjarga og…Lesa meira

true

Stofnun Klasa safna, sýninga og setra á Vesturlandi

Í dag, þriðjudaginn 6. júní, verður Klasi safna, sýninga og setra formlega stofnaður að Snorrastofu í Reykholti. Stofnunin er afrakstur vinnu sem hefur verið yfirstandandi síðan árið 2019, en verkefnið hefur verið unnið af ráðgjafafyrirtækin Creatrix. Verkefnastjóri Creatrix er Signý Óskarsdóttir sem vann með Sigursteini Sigurðssyni, menningarfulltrúa SSV, að stofnun klasans. Mótun klasans var gerð…Lesa meira

true

Varmalandsdagar fara fram um helgina

Varmalandsdagar verða haldnir í þriðja sinn um næstu helgi, dagana 10.-11. júní, að Varmalandi í Borgarfirði. Hátíðin ber undirtitilinn List og lyst sem vitnar í handgerða list og matarlyst og er tenging við skólana sem starfað hafa á svæðinu; barnaskóla og húsmæðraskóla. Vilhjálmur Hjörleifsson forsvarsmaður hátíðarinnar segir hana hugsaða sem vettvang fyrir listafólk að sýna…Lesa meira