Anna Þórhildur Gunnarsdóttir píanóleikari (t.h.) og Solveig Óskarsdóttir sópran. Ljósm. glh.

Sælusumrin löng – Dúó Áróra heldur tónleika á Vesturlandi

Píanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir og söngkonan Solveig Óskarsdóttir skipa tveggja manna tónlistarflokkinn Dúó Áróra. Þær munu ferðast um Vesturland á næstu dögum og halda þrenna tónleika. Fyrstu tónleikarnir verða í safnaðarheimilinu Vinaminni á Akranesi laugardaginn 10. júní, þeir næstu í Borgarneskirkju þriðjudaginn 13. júní og þriðju og síðustu verða í Stykkishólmskirkju föstudaginn sextánda en allir tónleikarnir hefjast kl. 19:30. Tónleikarnir bera yfirskriftina Sælusumrin löng en flutt verða íslensk og erlend sönglög.

Sælusumrin löng – Dúó Áróra heldur tónleika á Vesturlandi - Skessuhorn