Bíllaus dagur hjá bæjarstjóranum

"Ég var bíllaus í dag og greip því bara næsta lausa tæki til að fara á í vinnuna," sagði Haraldur Benediktsson bæjarstjóri á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Eins og flestir vita er Haraldur jafnframt bóndi á Vestri-Reini í næstu sveit og því var ekki um langan veg að fara á Massey Ferguson með áburðardreifarann. "Næst þegar þetta hendir verð ég með sláttuvélina á vélinni og þarf þá líklega stærra bílastæði," sagði Haraldur.

Bíllaus dagur hjá bæjarstjóranum - Skessuhorn