Frá handverkssýningunni í Þinghamri á Varmalandsdögum í fyrra. Ljósm. sþ.

Varmalandsdagar fara fram um helgina

Varmalandsdagar verða haldnir í þriðja sinn um næstu helgi, dagana 10.-11. júní, að Varmalandi í Borgarfirði. Hátíðin ber undirtitilinn List og lyst sem vitnar í handgerða list og matarlyst og er tenging við skólana sem starfað hafa á svæðinu; barnaskóla og húsmæðraskóla.

Vilhjálmur Hjörleifsson forsvarsmaður hátíðarinnar segir hana hugsaða sem vettvang fyrir listafólk að sýna og kynna list sína. ,,Tilgangurinn er að fá listafólk á öllum sviðum listar til að koma fram og kynna sína list, hver sem hún er og við leitumst við að tengja listina við menningu og sögu svæðisins. Svo stiklað sé á stóru þá sýnir listafólk verk sín í sölum félagsheimilisins Þinghamars en þar verður myndlist, leirlist, handverk og fjöllistahópur. Listakonan Louise Harris verður með vatnslitamyndir og ullarverk á Hótelinu á Varmalandi, þangað kemur einnig hinn kunni KK og spilar og syngur. Fjögurra rétta matarveisla verður einnig þar í boði, brauð verður grillað í skóginum, jólahús verður á svæðinu og nytjamarkaður verður opinn yfir daginn. Bæði kvöldin verður boðið upp á söngskemmtun en á laugardaginn ríða bræðurnir Jóhann og Þorsteinn Gauti Sigurðssynir á vaðið með söng og píanóleik ásamt Borgarfjarðardætrum sem er sönghópur úr héraði. Á sunnudeginum verða listasýningarnar endurteknar í Þinghamri en þá verður aðeins rólegri kvölddagskrá með ljúfum tónum frá sönghópnum „Tvær úr Tungunum“ ásamt upplestri Lilju Magnúsdóttur rithöfundar og Eyþórs Árnasonar ljóðskálds. Allir ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi á Varmalandi um næstu helgi,“ segir Vilhjálmur í samtali við Skessuhorn.

Varmalandsdagar fara fram um helgina - Skessuhorn